Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Lovísa Arnardóttir skrifar 17. maí 2026 14:55 Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, fagnaði sigri í gær. Í Kópavogi fækkar kvenkyns fulltrúum um tvo en þær eru þó enn í meirihluta. Vísir/Vilhelm Sextán nýir fulltrúar taka sæti í borgarstjórn Reykjavíkur. Konum fækkar víða en hlutfallið helst það sama annars staðar. Þær eru í nokkrum sveitarfélögum meirihluti fulltrúa.
Í nýrri borgarstjórn eru þær ellefu, en þar af eru fjórar í Sjálfstæðisflokki, tvær í Samfylkingu, ein í Miðflokki, ein í Viðreisn, tvær í Vinstrinu og ein í flokki Sósíalista. Sex af ellefu konum eru nýir borgarfulltrúar. Konum hefur farið fækkandi í borgarstjórn allt frá því að þær voru í miklum meirihluta eftir kosningar 2018 og voru fimmtán, eða 56,6 prósent borgarfulltrúa. Árið 2022 fækkaði þeim í þrettán og svo aftur núna í ellefu. Það nær þó ekki hlutfallinu sem var kjörtímabilið 2014 til 2018 þegar þær voru aðeins sjö. Í Garðabæ bar Sjálfstæðisflokkurinn yfirburðasigur úr býtum í Garðabæ og bætti þar við sig einum bæjarfulltrúa frá síðustu kosningum. Af átta fulltrúum flokksins er helmingur konur. Auk þess er fulltrúi Viðreisnar kona, Þorbjörg Þorvaldsdóttir. Fimm af ellefu bæjarfulltrúum eru þannig konur og fækkar þeim um eina en á síðasta kjörtímabili voru þær sex en þá var oddviti Framsóknarflokksins kona. Konur í meirihluta en fækkar þó Í Kópavogi er Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta og sex fulltrúa af ellefu. Konur eru í meirihluta í flokknum eða fjórar af sex. Auk þeirra er oddviti Viðreisnar kona, María Ellen Steingrímsdóttir, og svo sú sem situr í öðru sæti hjá Samfylkingu en flokkurinn bætti við sig fulltrúa og fékk tvo. Konur eru því í meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs, sex af ellefu, en þeim fækkar þó frá síðustu kosningum þegar þær voru átta af ellefu. Í Hafnarfirði tapaði Sjálfstæðisflokkur manni, Framsókn bætti við sig og Samfylking tapaði verulega. Fjórar konur sitja nú í bæjarstjórn af ellefu fulltrúum alls. Í meirihluta Framsóknar og Sjálfstæðisflokks eru tvær konur. Hlutfall kvenna helst það sama þó að fulltrúarnir hafi tekið breytingum frá síðustu kosningum. Konum fækkar á Akureyri Á Akureyri féll meirihlutinn en Sjálfstæðisflokkur og L-listi ræða nú saman. Þar eru ellefu fulltrúar eins og í hinum sveitarfélögunum að ofan en fimm þeirra eru kvenkyns. Á síðasta kjörtímabili voru kvenkyns fulltrúar sjö og þeim fækkar því um tvo. Sjö framboð náðu inn fulltrúa á Akureyri í gær en þau voru sex í síðustu kosningum. Í Árborg er meirihluti fulltrúa kvenkyns eða alls sex, sem er það sama og eftir síðustu kosningar. Fjórir flokkar eða listar voru í framboði og náðu þau öll einum eða fleirum fulltrúum inn. Sjálfstæðisflokkur er þó með meirihluta þeirra eða 52,8 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 3332 atkvæði eða 52,8 prósent og sex bæjarfulltrúa. Framsóknarflokkurinn fékk 1309 atkvæði eða 20,8 prósent og Samfylkingin og óháðir 1184 atkvæði eða 18,8 prósent. Báðir flokkar fengu tvo bæjarfulltrúa. Þá fékk Viðreisn 481 atkvæði eða 7,6 prósent sem skilaði einum fulltrúa. Í Múlaþingi eru einnig sex kvenkyns fulltrúar frá fjórum framboðum. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2022 mynduðu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur meirihluta og bættu þau við sig í kosningum í gær. Þau eru nú með sjö fulltrúa af ellefu, fjórir þeirra eru konur. Hlutfall kvenna í sveitarstjórn helst það sama milli kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig tveimur mönnum og Samfylkingin tapaði einum í Reykjanesbæ. Framsóknarmenn héldu sínum þremur en Viðreisn fékk engan mann kjörinn. Fjórar konur eru í sveitarstjórninni að þessu sinni en einungis ein í Sjálfstæðisflokki sem fékk fimm af ellefu fulltrúum. Hægt er að fylgjast með nýjustu vendingum í vaktinni að neðan.
Kópavogur Reykjavík Hafnarfjörður Árborg Akureyri Múlaþing Garðabær Reykjanesbær Jafnréttismál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira