„Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Sindri Sverrisson skrifar 18. maí 2026 10:02 Stuðningsmenn Tindastóls eru magnaðir og setja alltaf skemmtilegan svip á úrslitakeppnina. Badmus segir þá geta gert gæfumuninn í kvöld. Skjáskot/Sýn Sport Taiwo Badmus segir Tindastólsliðið ekki enn hafa sýnt sínar bestu hliðar en ætlar að nýta orkuna frá áhorfendum á Sauðárkróki í kvöld til að jafna einvígið gegn Grindavík, um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta.
Grindavík er 2-1 yfir og fær aðra tilraun til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld, í Síkinu, eftir að hafa tapað fyrir Badmus og félögum í Grindavík á föstudaginn. „Það er auðvitað erfitt að lenda 2-0 undir en við elskum áskoranir og þetta er ein af þeim. Við verðum bara að fara jákvæðir inn í leikinn, verðum á heimavelli og getum notað orkuna frá öllum stuðningsmönnunum okkar,“ segir Badmus en hann settist niður og fór yfir málin fyrir leik kvöldsins í viðtali sem sjá má hér að neðan. Leikur Tindastóls og Grindavíkur hefst klukkan 19:15 í kvöld og vegleg upphitun á Sýn Sport Ísland hefst klukkan 18:30. Klippa: Badmus í viðtali fyrir stórleik kvöldsins Badmus bendir á að allir þrír leikirnir við Grindavík til þessa hafi verið jafnir og spennandi. Ekki hafi mikið breyst fyrir þriðja leikinn þó að þá hafi Tindastóll unnið. „Við fengum mikla aukaorku frá strákunum af bekknum. Það breyttist ekki mikið, fyrir utan ákefðina í okkur,“ sagði Badmus og bætti við: „Í fyrstu tveimur leikjunum fannst mér þeir ekki endilega vinna okkur heldur létum við vinna okkur. Við getum ekki verið að vorkenna okkur, við erum í þessari stöðu og eigum að njóta þess. Við notum orkuna frá okkar fólki á heimavelli og hvaðan sem við getum. Við höfum allir unnið titilinn saman og þetta er nánast sama lið. Við verðum að nýta reynsluna sem við höfum og finna leið til að vinna.“ Hann viðurkennir að það sé vissulega farið að taka sinn toll að spila svo marga leiki á skömmum tíma, eins og hjá öðrum leikmönnum. „Skrokkurinn er eins góður og hann gæti verið. Úrslitakeppnin er ferðalag – erfið fyrir fyrir lappirnar og skrokkinn. Við verðum að hugsa vel um að nærast og sofa vel, og þjálfarateymið gerir mjög vel í að sjá okkur fyrir sjúkraþjálfun, nuddi og því sem við þurfum,“ sagði Badmus. Badmus biðlar til hinna mögnuðu stuðningsmanna Tindastóls um að hækka rána enn frekar með stuðningi sínum í kvöld: „Síkið hefur verið brjálað alla úrslitakeppnina svo ég býst ekki við neinu öðru. Þetta verður síðasti leikurinn í Síkinu á tímabilinu svo þetta verður algjör klikkun. Ég hvet þau til að vera sérstaklega brjáluð núna. Ég veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau,“ sagði Badmus glaðbeittur og gíraður fyrir veislunni sem fram undan er í kvöld.
Bónus-deild karla Tindastóll UMF Grindavík Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Þór Ak. - KR | Tapar KR aftur fyrir nýliðum? Íslenski boltinn Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Íslenski boltinn Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Fleiri fréttir Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Sjá meira