Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2026 08:34 Jeremy Pargo var valinn mikilvægasti leikmaður (MVP) úrslitakeppninnar. Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Það er hreinlega tilefni til að reisa styttu af Bandaríkjamanninum Jeremy Pargo í Grindavík eftir guðdómlega frammistöðu hans í gærkvöld þegar Grindvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Tilþrif Pargo verða lengi í minnum höfð og má nú sjá þau á Vísi.
Frammistöðu Pargo í lýsingu Gumma Ben og Harðar Unnsteinssonar á Sýn Sport Íslandi má sjá hér að neðan. Pargo skoraði alls 48 stig í leiknum sem er nánast einsdæmi í úrslitaeinvígi á Íslandi. Hann fór fyrir sínu liði frá upphafi og skoraði 22 stig í fyrsta leikhlutanum, þegar Grindvíkingar, sem léku án þriggja lykilmanna, bjuggu til bil sem Tindastóli tókst aldrei að brúa. Pargo setti meðal annars niður tíu þrista í leiknum, sem er met í úrslitum í óframlengdum leik, og þar af var náðarhöggið sem hann veitti Tindastólsmönnum þegar hann jók muninn í 105-101 hálfri mínútu fyrir leikslok. Sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi áttu vart orð til að lýsa frammistöðu Grindavíkur en bentu þó á að fleiri hefðu átt skínandi frammistöðu fyrir Grindavíkurliðið. Enginn lék þó eins og Pargo og enginn í deildinni gæti leikið eins og Pargo gerði í gær, að mati sérfræðinganna: „Ég hef aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi,“ sagði Hermann Hauksson í beinni útsendingu úr Síkinu í gærkvöld. „Það sem Pargo sýndi okkur hérna í dag er bara eins og Hlynur [Bæringsson] sagði… gæðin sem hann er með, þetta Euroleague-, NBA-dæmi… Hérna sýndi hann bara nákvæmlega hvaða gæði hann hefur fram yfir alla aðra leikmenn í þessari deild,“ sagði Hermann en hinn fertugi Pargo á að baki feril í sterkustu deildarkeppnum heims, NBA-deildinni og Euroleague. „Þetta er ótrúlegt. Þessi leikur hjá honum var bara sturlun. Ég er orðlaus,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson sem þó þekkir það vel að raða niður þriggja stiga skotum sjálfur.
UMF Grindavík Bónus-deild karla Tengdar fréttir Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Jeremy Pargo átti stórkostlegan leik þegar að Grindavík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri gegn Tindastól í Síkinu í kvöld. Pargo þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti á farsælum ferli. 18. maí 2026 22:00 Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Hún var tárvot sigurstundin hjá bræðrunum Jóhanni Þór Ólafssyni og Ólafi Ólafssyni í leikslok í kvöld þegar að Grindavík tryggði sér sinn fjórða Íslandsmeistaratitil í sögunni með sigri gegn Tindastól í Síkinu. Bræðurnir sem lifa fyrir Grindavík og hafa mátt þola margt að uppskera árangur erfiðisins. 18. maí 2026 21:33 Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta í fjórða sinn í sögunni eftir sigur í Síkinu í kvöld gegn heimamönnum í liði Tindastóls. Lokatölur 101-109. Grindavík hafði betur í úrslitaeinvíginu 3-1. Fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins síðan árið 2013. 18. maí 2026 22:07 Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Þór Ak. - KR | Tapar KR aftur fyrir nýliðum? Íslenski boltinn Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Íslenski boltinn Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Fleiri fréttir Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Sjá meira
Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Jeremy Pargo átti stórkostlegan leik þegar að Grindavík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri gegn Tindastól í Síkinu í kvöld. Pargo þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti á farsælum ferli. 18. maí 2026 22:00
Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Hún var tárvot sigurstundin hjá bræðrunum Jóhanni Þór Ólafssyni og Ólafi Ólafssyni í leikslok í kvöld þegar að Grindavík tryggði sér sinn fjórða Íslandsmeistaratitil í sögunni með sigri gegn Tindastól í Síkinu. Bræðurnir sem lifa fyrir Grindavík og hafa mátt þola margt að uppskera árangur erfiðisins. 18. maí 2026 21:33
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta í fjórða sinn í sögunni eftir sigur í Síkinu í kvöld gegn heimamönnum í liði Tindastóls. Lokatölur 101-109. Grindavík hafði betur í úrslitaeinvíginu 3-1. Fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins síðan árið 2013. 18. maí 2026 22:07