Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. maí 2026 23:34 Meint geimfar skömmu áður en það var sprengt í agnir af orrustuþotu. Bandaríska varnarmálaráðuneytið Bandaríska varnarmálaráðuneytið birti í dag myndskeið af því þegar flugmaður bandarískrar orrustuþotu skaut niður fljúgandi furðuhlut yfir Húronvatni í febrúar 2023.
Birtingin er samkvæmt loforði Trump-stjórnarinnar um að gera gögn alríkisins er varða fljúgandi furðuhluti, eða það sem er víst nú kallað óþekkt óvenjuleg fyrirbæri (e. unidentified anomalous phenomena) aðgengilegri almenningi. Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins birtust um 160 skjöl í dag og þeirra á meðal eru myndbönd af fyrrnefndum óþekktum óvenjulegum fyrirbærum. Eitt myndbandanna fjallar bandaríski miðillinn New York Post um og sýnir einhvers konar loftfar með hala svífa um loftin yfir Húronvatni út af Michigan-ríki. Hér hefur flugfarinu verið splundrað af einhvers konar eldflaug.Bandaríska varnarmálaráðuneytið Farinu er lýst í umfjöllun Post sem „demantslöguðu“ og minnir um margt á einhvers konar blöðru. Samkvæmt birtingu varnarmálaráðuneytisins var ekki hægt að bera kennsl á farið og því var orrustuþotu falið að sprengja það í loft upp sem hún og gerði. Á myndbandinu sést hvernig þotan hæfir farið og svo hvernig það splundrast í kjölfarið og brak þeytist í allar áttir. Ráðuneytið hefur nú gert þónokkuð magn gagna aðgengilegt á internetinu og á meðal þeirra eru myndskeið víða að í heiminum. Pete Hegseth varnarmálaráðherra sagði í dag að gögn ríkisins er varða téð óþekkt óvenjuleg fyrirbæri hefðu svo lengi vakið forvitni Bandaríkjamanna að tíminn væri til kominn að þjóðin fengi að berja þau augum sjálf.
Bandaríkin Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Sjá meira