Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson skrifar 25. maí 2026 09:31 Komi fram tillaga um að stofna slíkan her yrði honum ekki komið á nema með samþykki allra aðildarríkja ESB. Varnar- og öryggismál eru fyrst og fremst á forræði hvers aðildarríkis fyrir sig. ESB er með sameiginlega öryggis- og varnarstefnu (CSDP) sem snýst að mestu um friðargæslu, uppbyggingu á hamfarasvæðum og landamæraeftirlit. Þátttaka aðildarríkja í slíkum aðgerðum er valkvæð. Hvert ríki ræður því sjálft hvernig það hagar vörnum sínum og ákveður sjálft hvort það leggur til mannskap í verkefni ESB. Þar sem Ísland er ekki með her yrðum við eðli málsins samkvæmt ekki krafin um hermenn. Við gætum hins vegar lagt til borgaralega sérfræðinga í björgun, friðargæslu eða uppbyggingu, líkt og við gerum í dag, ef við svo kjósum. Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði grein í liðinni viku sem bar heitið “Íslenskir hermenn?”. Þar gefur hann í skyn að með inngöngu Íslands í ESB gætu Íslendingar þurft að taka þátt í sameiginlegum Evrópskum her. Skoðum þetta aðeins betur. Þingmaðurinn byggir grein sína á því að “áform innan ESB” séu til um eigin herafla. Annað hvort er þingmaðurinn vísvitandi að mistúlka eða þá ýkja all verulega til að skapa tilfiningu hjá fólki um að eitthvað sé að óttast við aðildarviðræður. Það er satt að einn evrópuþingmaður, Andrius Kubilius, hefur lagt fram tillögu um stofnun slíks hers. En sú tillaga er ekki stefna sambandsins. Heldur hugarfóstur eins manns. Í Evrópusambandinu er fjölbreytt og fjölmenn flóra fólks með allskonar mismunandi skoðanir og hugmyndir, alveg eins og á Íslandi. Þótt einn þingmaður á Alþingi Íslendinga sé með ákveðna hugmynd eins og til dæmis um Íslenskan her þá þýðir það ekki að það sé stefna Íslands að stofna íslenskan her. Það sama gildir um Evrópusambandið. Vissulega á hugmyndin sér einhverja stuðningsmenn umfram þennan eina þingmann. En það breytir því ekki að hún er hvergi nærri samþykktri stefnu Evrópusambandsins, enda myndi slíkt stríða gegn reglum sambandsins um fullveldi ríkja í varnarmálum. Sams konar hugmyndir hafa á ólíkum tíma átt hljómgrunn innan sambandsins en þær hafa alltaf strandað á fullveldis sjónarmiðum, lagalegum hindrunum og ósamstöðu. Stofnun sameiginlegs herafla krefst samþykkis allra aðildarríkja sambandins. Sem sagt til að gera þetta auðskiljanlegra, þegar Ísland væri gengið inn í sambandið og svona hugmynd myndi ná slíku brautargengi að um hana væri kosið væri nóg að Ísland segði nei til að af þessu yrði ekki. Þar að auki kemur Lissabon sáttmálinn sem Jón Pétur vitnar í, nánar tiltekið grein 42.7, veg fyrir að ríki sendi hermenn á vígvelli. Hvert ríki ákveður sjálft hvernig það leggur sitt af mörkum. Þegar Ísland varð meðlimur að NATO, ríkti fullur skilningur á því meðal aðildarríkja að við erum herlaust ríki. Það sama verður gert í ESB, aðildarríki sambandsins gera sér fulla grein fyrir sérstöðu Íslands. Jón Pétur viðurkennir þetta sjálfur með tilvísun í utanríkisráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Ísland hefur verið herlaust ríki innan Nató frá 1949 án þess nokkurn tímann að hafi verið þrýst á að við stofnuðum her. Þess vegna spyr ég einfaldlega: ef stærsta hernaðarbandalag heims, NATO, hefur aldrei gert kröfu um íslenskan her, af hverju ætti þá samband sem er fyrst og fremst efnahagssamband, að krefjast þess? Eitt er líklega rétt í grein Jóns Péturs, að hernaðarlegar varnir Íslands séu nú þegar nánast eins sterkar og þær verða. En hér er mótsögn í málflutningi hans sem vert er að skoða. Hann byggir alla sína niðurstöðu á varnarsamningnum við Bandaríkin, en viðurkennir í sömu grein að Bandaríkin séu að draga úr viðveru sinni í Evrópu og krefjast þess að ríki álfunnar axli meiri ábyrgð sjálf. Hann reiðir sig með öðrum orðum á tryggingu sem hann segir sjálfur að sé að veikjast. En eitt gleymist í umræðunni, og það er efnahagslegt öryggi. Upp á síðkastið hafa Bandaríkin minnt okkur á hvað tollar og viðskiptaþvinganir geta verið beitt vopn í alþjóðlega samtengdum heimi. Þess vegna er það efnahagslega skjól, sem ESB veitir, sterk trygging fyrir Ísland í kvikum heimi. Fullur aðgangur að 450 milljón manna innri markaði -veitir okkur samningsstyrk sem eitt lítið 400 þúsund manna ríki getur ekki skapað sjálft, og það er vörn gegn því að vera beitt einhliða efnahagsþvingunum eða lenda á milli stórvelda í tollastríði. Efnahagslegt öryggi okkar er í húfi og við eigum að fullkanna hvernig aðild gæti styrkt þær til framtíðar. Öryggi árið 2026 snýst ekki bara um skriðdreka, hermenn, herskip og þotur. Það snýst líka um hvernig við verjum okkur gagnvart því að lokast fyrir utan mikilvæga markaði sem gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir okkar samfélag. Ísland þarf ekki að velja á milli hernaðaraðstoðar Bandaríkjanna eða aðildar að ESB - við getum gert bæði. Höfundur er formaður Ungra Evrópusinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar