Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Agnar Már Másson skrifar 27. maí 2026 17:37 Suðurnesjalína 2 er 29 kílómetra rafmagnslína sem á að tryggja orkuöryggi á Suðurnesjum. vísir/arnar Hæstiréttur dæmdi Landsneti í vil og hafnaði í dag kröfu nokkurra landeigenda um að ógilda ákvörðun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra frá 21. júní 2024 um heimild Landsnets til eignarnáms réttinda vegna lagningar Suðurnesjalínu 2 í Sveitarfélaginu Vogum. Landsnet viðurkennir í tilkynningu að samtal við sveitarfélög, landeigendur og aðra hagaðila hefði klárlega mátt ganga betur.
Landsnet greinir frá þessu í tilkynningu en dómurinn var kveðinn upp í dag en hefur ekki verið birtur opinberlega. Rétturinn staðfestir þannig niðurstöðu Landsréttar, sem hafði þegar staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu, um að fullnægjandi lagaheimild hefði verið til staðar og fylgt hefði verið lögbundinni málsmeðferð við undirbúning og framkvæmd eignarnáms vegna Suðurnesjalínu 2. Suðurnesjalína 2 á að rísa að mestu samhliða Suðurnesjalínu 1.Grafík/Kristján Suðurnesjalína 2 verður tæplega þrjátíu kílómetra löng loftlína með 86 möstrum sem á að hafa það markmið að tryggja orkuöryggi á Suðurnesjum enn frekar. Framkvæmdir við línuna eru langt komnar; búið er að reisa hið minnsta 69 af 86 möstrum línunnar og einungis á eftir að framkvæma á þeim jörðum sem tengjast eignarnáminu. Í tilkynningu frá 2025, þegar dómur féll í Landsrétti, sagði að áætlaður verktími þar væri um fjórir mánuðir. Landsnet áréttar í tilkynningu sinni að fyrirtækið kjósi ávallt að ljúka málum með samningum. Þegar horft sé til síðustu tuttugu ára hafi samningar við landeigendur náðst í yfir níu af hverjum tíu tilfellum og í aðeins örfá skipti hafi viðræður ekki skilað árangri; þá hafi þurft að grípa til eignarnáms. „Landeigendur hafa þó ávallt rétt til að láta reyna á eignarnámið fyrir dómi, líkt og gert var í þessu tilviki,“ skrifar Landsnet. Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets viðurkennir þó samkvæmt tilkynningu ríkisfyrirtækisins að samtal Landsnets við sveitarfélög, landeigendur og aðra hagaðila hafi klárlega mátt ganga betur. „Af þessu þurfum við að læra. Það eru sameiginlegir hagsmunir allra aðila að mál sem þessi dragist ekki úr hófi með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið í heild,“ er haft eftir Rögnu.
Suðurnesjalína 2 Dómsmál Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira