Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen skrifar 1. júní 2026 08:02 - Konur gegna lykilhlutverki í íslenskum landbúnaði Alþjóðlegi mjólkurdagurinn er haldinn þann 1. júní ár hvert. Alþjóðlegi mjólkurdagurinn var settur á laggirnar af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á mikilvægi mjólkurframleiðslu fyrir heiminn allan. Þetta árið fær þessi dagur þó sérstaka og dýpri merkingu, þar sem þemað í ár er “Fögnum kvenbændum” sem er einkum viðeigandi enda hefur árið verið tileinkað konum í landbúnaði – konum sem hafa í árhundruð staðið vaktina í íslenskri matvælaframleiðslu, oft án þess að fá þá athygli eða viðurkenningu sem þær eiga skilið. Íslenskur landbúnaður hefur frá upphafi byggst á samvinnu fjölskyldna þar sem konur hafa gengt lykilhlutverki. Þær hafa ekki aðeins séð um heimilin, heldur einnig tekið þátt í fjósverkum, bókhaldinu, ræktun, kynbótastarfi og almennum rekstri búanna. Í dag eru konur ekki síður leiðindi afl í nýsköpun, sjálfbærni og þróun íslensks landbúnaðar – sem kúabændur, ráðgjafar, vísindakonur, stjórnendur og frumkvöðlar. Mjólkurframleiðsla er ein af grunnstoðum íslensks samfélags og þar gegna konur ómetanlegu hlutverki. Á hverjum degi starfa íslenskar konur í fjósum landsins. Oft er dagurinn tekin snemma til að sinna gripum og mjöltum, tryggja velferð gripa og heilnæmi íslenskra matvæla, við einhverjar ströngustu kröfur sem þekkjast í heiminum. Þrátt fyrir mikilvægi greinarinnar hefur staða bænda verið undir stöðugum þrýstingi. Framleiðslukostnaður hefur hækkað ört á meðan afurðaverð hefur ekki fylgt sömu þróun. Það reynir sérstaklega á fjölskyldubúin – og þar með konurnar sem bera oft jafnt ábyrgð á rekstri búsins, sem og heimilisins. Þessi staða sýnir skýrt hversu mikilvægt er að stjórnvöld skilji að matvælaframleiðsla er ekki sjálfsögð og það er ekki sjálfsagt að neytendur hafi aðgang að íslenskum mjólkurvörum í hillum verslana. Á Alþjóðlega mjólkurdeginum þann 1. júní 2026 er því tilefni til að staldra við og þakka þeim konum sem halda upp íslenskri matvælaframleiðslu, alla daga ársins. Þeim sem vinna oft langa vinnudaga án frídaga, standa af sér óveður – bæði óveður í sinni skýrustu merkingu og pólitískt – og halda áfram að byggja upp íslenskan landbúnað af metnaði og ábyrgð. Framtíð íslensks landbúnaðar verður ekki tryggð nema stjórnvöld og samfélagið standi með bændum. Og framtíð greinarinnar verður ekki byggð án þeirra kvenna sem hafa verið hjartað í íslenskum sveitum í gegnum tíðina. Á þessum degi eigum við ekki aðeins að fagna mjólkinni – heldur líka fólkinu á bak við hana. Sérstaklega konunum sem hafa með þrautseigju, dugnaði og framtíðarsýn mótað íslenskan landbúnað kynslóð fram af kynslóð. Höfundur er formaður Nautgripabænda BÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landbúnaður Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
-
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar