Hættulegt að lána lyf Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 29. maí 2026 19:02 Martin Ingi Sigurðsson prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítalanum segir mikilvægt að fólk láni ekki öðrum lyf. Vísir/Bjarni Leggja þarf að meðaltali einn inn á gjörgæsludeild Landspítalans í hverri viku vegna afleiðinga eða notkunar á morfínskyldum verkjalyfjum. Yfirlæknir segir Íslendinga eiga Norðurlandamet í ávísunum slíkra lyfja og hvetur fólk til að taka ekki lyf sem öðrum var ávísað.
Landspítalinn og Háskóli Íslands stóðu fyrir fundi í dag þar sem rætt var um ópíóíða- og verkjalyfjameðferðir á Íslandi en notkun lyfjanna er töluverð hér á landi. „Íslendingar eru í raun og veru Norðurlandameistarar í ávísunum og þá kannski aðallega í fjölda einstaklinga sem nota morfínskyld lyf á hverju ári. Það eru svona um það bil tuttugu til þrjátíu prósent fullorðinna sem leysa út lyfseðla fyrir morfínskyldum lyfjum á hverju ári,“ segir Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum, en hann var fundarstjóri í dag. Þrátt fyrir að notkun morfínskyldra verkjalyfja hafi minnkað á Íslandi þá hefur tíðni aukaverkana ekki gert það, sem þykir áhyggjuefni. Leggja þarf að meðaltali einn inn á gjörgæsludeild Landspítalans í hverri viku vegna afleiðinga eða notkunar á morfínskyldum verkjalyfjum. Þá leitar líka fjöldi fólks á bráðamóttökuna. „Á hverjum degi koma einstaklingar sem hafa lent í vandræðum með lyf eða eru alvarlega veikir vegna notkunar lyfja.“ Hvatt til að skila umframlyfjum Þá nefnir Martin það hve ótrúlega varasöm fölsuð lyf geti verið og að fólk viti oft ekki hvað það sé að innbyrða. „Við höfum séð lyfjaeitrun hjá fólki sem er að taka lyf sem það heldur að séu sterk verkjalyf, sem reynast vera lyfjafalsanir þar sem fólk er að taka allt önnur lyf, miklu sterkari lyf, lyf sem eru í raun og veru ólögleg og hvergi í notkun.“ Hann leggur sérstaka áherslu á að fólk taki ekki nokkurn tímann lyf sem ávísað var á aðra. „Það er mjög vinsælt að í raun og veru lána lyf eða slíkt og það getur verið hættulegt. Bæði vitum við oft ekki hvaða lyf fólk er að taka, í hvaða skammti og hérna og annað slíkt.“ Til að reyna að lágmarka morfínskyld verkjalyf í umferð þá er fólk hvatt til að skila þeim sem það notar ekki. „Það felst til dæmis í því að ef maður fær lyfjunum ávísað við bráðum veikindum eða eftir skurðaðgerð og nýtir ekki öll lyfin, að farga þeim á öruggan hátt og það felst í því að skila töflunum aftur í apótek.“
Lyf Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira