„Okkar besti hálfleikur á tímabilinu“ Ester Ósk Árnadóttir skrifar 30. maí 2026 16:58 Einar Guðnason, þjálfari Víkings, á hliðarlínunni í leik kvöldsins Vísir/Pawel Cieslikiewicz „Það eru blendnar tilfinningar, ég er náttúrulega mjög ánægður með sigurinn og að skora sex mörk“, sagði Einar Guðnason þjálfari Víkings Reykjavík eftir 6-4 útisigur á móti Þór/KA. „
Á móti kemur að við fengum á okkur þrjú mörk undir lokinn sem var algjör óþarfi. Maður var svolítið svekktur með þau.“ Víkingur var að vinna 6-1 þegar að þær fengu á sig þrjú mörk á stuttum kafla. „Ég veit ekki hvað gerist, við verðum að skoða það. Við fáum tvö á okkur eftir horn og bara frekar lélegur varnarleikur þarna í lokinn. Maður hefur nú séð ýmislegt í þessu þannig maður var ekki rólegur að sjá okkur fá þessi mörk á okkur. Maður var líka bara svekktur að vera í 6-1 og vera svo allt í einu í stöðunni 6-4 en við fögnum sigrinum.“ Leikurinn var ekki nema um hálfrar mínútna gamall þegar Víkingur var komið yfir. „Mér fannst við koma bara mjög einbeittar til leiks, eins og sást bara alveg á tánum og skorum mark eftir sirka 30 sekúndur og skorum síðan þrjú mörk í viðbót, mjög fín mörk. Síðan eigum við líka skot í slá og fleiri færi þannig að þetta var frábær fyrri hálfleikur, okkar besti á þessu tímabili. Það hefði samt verið frábært ef við hefðum geta haldið áfram eins og við gerðum í fyrri hálfleik í þeim síðari. Við skorum tvö fín mörk og fáum færi en súrt að fá þessi mörk á okkur.“ Mörg mörk Víkings komu eftir einfaldar sóknir þar sem ein sending úr öftustu línu og önnur inn á teig nægðu til að opna vörn Þórs/KA og skapa marktækifæri. „Við vorum búin að sjá gloppur hjá andstæðingnum og eitthvað af þessu var set upp og síðan var eitthvað af þessu líka bara gæði hjá mínum leikmönnum.“ Víkingur voru búnar að tapa tveimur leikjum í röð fyrir leikinn í dag og voru í áttunda sæti deildarinnar. „Þessi sigur var bara mjög mikilvægur ef við ætlum að vera í einhverri baráttu.“
Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Fótbolti Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Enski boltinn Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport Fleiri fréttir Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira