Arnar sendir pillu á FIFA Aron Guðmundsson skrifar 31. maí 2026 17:36 Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta. Vísir / Getty Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, er ekki sáttur með nýja reglu sem FIFA hefur tekið í notkun og Ísland fann fyrir í leik gegn Japan í dag. Þróunin heillar hann ekki.
Ísland og Japan mættust í æfingarleik í Tókýó í morgun. Leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna. Skömmu fyrir sigurmark Japans gerði íslenska liðið breytingu. Kristian Nökkvi Hlynsson var tekinn af velli og inn á í hans stað átti að koma Ísak Snær Þorvaldsson. Kristian var of lengi að koma sér af velli að mati dómarans og því fékk Ísak Snær ekki að koma strax inn á þegar að Kristian yfirgaf völlinn og var íslenska liðið því einum manni færri þegar Japanir skora sigurmarkið. Er um að ræða nýja reglu hjá FIFA sem kynnt var fyrr á árinu og á að leggja mikla áherslu á komandi heimsmeistaramóti. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands er ósáttur með þessa nýju reglu og kom skýrt inn á það í viðtali eftir leikinn í dag: „Ef að fólk vill þetta þá fá áhorfendur lágvarnar fótbolta frá liðinu sem er einum manni færri. Það er ekki þróun sem að heillar mig mjög mikið. Við misstum Mikael Egil líka út af vegna höfuðmeiðsla. Japaninn fer óvart í hausinn á honum og allt í einu erum við orðnir einum manni færri í eina eða tvær mínútur. Jakkafötin sem ákváðu þessa reglu. Þetta er ekki alveg að virka fyrir fótboltann að mínu mati. Þetta þarf að skoða mjög vel og vandlega,“ sagði Arnar í viðtali sem birtist á samfélagsmiðlareikningum KSÍ.
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjá meira