Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. júní 2026 13:46 Bjarna var illa brugðið á eigin heimili fyrir helgi. Húsráðandi á Kársnesi í Kópavogi sem vaknaði upp við innbrotsþjófa sem brutust inn til hans um miðja nótt segist vera hugsi yfir hugrekki þjófanna sem virtu Securitas miða að vettugi áður en þeir létu til skarar skríða. Hann segist þakklátur fyrir að hafa verið einn heima enda sitji atburðarásin enn í honum. „
Ég er aðallega hugsi yfir því sem mér finnst vera stóra málið og það er að fælingarmáttur Securitas miðanna er enginn. Það virðist vera sem þeir séu búnir að reikna út viðbragðstíma Securitas og fara inn hvort sem miðarnir eru þarna eða ekki,“ segir Bjarni Hafþór Helgason íbúi á Huldubraut á Kársnesi í Kópavogi. Hann greinir frá innbrotinu sem átti sér stað aðfaranótt fimmtudags í færslu á íbúahópnum Kársnesið okkar og því hvernig sex Securitas miðar í húsinu hafi verið virtir að vettugi. Fljótir að koma sér út Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er innbrotið til rannsóknar. Er lögregla að fara yfir myndefni úr hverfinu. Í færsu sinni lýsir Bjarni innbrotinu og hvernig hann hafi vaknað við læti þegar gluggi í næsta herbergi var brotinn upp. Hann hafi ekki áttað sig á því hvað var að gerast en fannst hann heyra lágværa rödd. „Ég reis upp og sá á símanum að klukkan var 4:20 og áttaði mig þá á hvað var í gangi. Ég fór úr herberginu með símann í höndunum og beint upp stigann og hringdi í 112, tilkynnti staðsetningu og hvað væri að gerast og óskaði eftir lögreglu strax.“ Innbrotsþjófarnir hafi þá heyrt í Bjarna í símanum og verið fljótur að koma sér aftur út um gluggann. Ljóst sé að að minnsta kosti annar þeirra hafi verið kominn inn því fatastandur innan við gluggann hafði verið færður úr stað. „Ég sá aldrei þjófanna en álít þá hafa verið tvo því mér fannst ég heyra lágværa rödd eða raddir. Sem betur fer fór ég upp stigann með símann en ekki inn í herbergið þar sem innbrotið átti sér stað, því maður veit aldrei í hvers konar ástandi fólk er við svona aðstæður. Lögreglan kom eftir nokkrar mínútur en þá var ekkert að sjá nema verksummerkin á glugganum.“ Þakklátur að hafa verið einn heima Bjarni lýsir því í samtali við Vísi að hann sé þakklátur að hafa verið einn heima þegar innbrotið átti sér stað. Eiginkona hans hafi af tilviljun ekki verið heima þessa nótt. „Og ég er feginn að hún skildi ekki hafa upplifað þessar barsmíðar og það er hluti af því að ég skrifaði þessa færslu, það er gott að tala um hlutina, því þetta hefur haft virkilega slæm og hvekkjandi áhrif á mann. Höggin sitja í manni.“ Hann segist í rælni hafa ákveðið að fara upp stigann heima hjá sér til að hringja í lögreglu en ekki næsta herbergi. Ekki hafi verið hægt að vita hvað hefði orðið hefði hann gengið í flasið á innbrotsþjófunum.
Lögreglumál Kópavogur Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira