„Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Jakob Bjarnar skrifar 1. júní 2026 14:46 Diljá Mist og Þorbjörg Sigríður. Ánægðar með að jafnlaunavottunin hafi nú loks verið aflögð. Diljá Mist Einarsdóttir, sem barist hefur fyrir afnámi jafnlaunavottunarinnar lengur en hún kærir sig um að muna, fagnar því að þetta skuli nú loks vera orðið að veruleika. Málið var afgreitt á þingi fyrir hádegi í dag.
Vísir heyrði í Diljá í kjölfar þessa, óskaði henni til hamingju og spurði hvort þrákelknin borgaði sig á endanum? „Takk og sömuleiðis. Já, mér sýnist það!“ sagði Diljá Mist að vonum ánægð. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, flutningsmaður frumvarpsins, segir að afnám jafnlaunavottunar hafi verið samþykkt og hún lýsir yfir ánægju með það. Diljá Mist hefur barist gegn jafnlaunavottuninni lengur en hún kærir sig um að muna. Hún segir það sýna að jafnvel stjórnarandstöðuþingmaður geti haft áhrif ef hann bara hamast.vísir/vilhelm „Fyrir kosningar sagði Viðreisn að nauðsynlegt væri að endurskoða þetta kerfi. Nú höfum við staðið við það loforð með lagabreytingum. Við höfum hlustað á raddir atvinnulífsins og brugðist við,“ segir Þorbjörg Sigríður á Facebook. Vill hrósa Þorbjörgu Sigríði sérstaklega Þorbjörg Sigríður hefur þó ekki gefið málið alfarið frá sér. Ekki þannig. „Við stöndum hins vegar líka vörð um jafnrétti á vinnumarkaði. Árangur Íslands í jafnréttismálum er nefnilega engin tilviljun. Stjórnvöld munu vaka yfir jafnrétti á vinnumarkaði en með mun einfaldari hætti. Tekið verður upp einfaldara og hagkvæmara kerfi. Áfram er skylda á fyrirtækjum og atvinnulífinu að tryggja jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf,“ segir Þorbjörg Sigríður. Jafnalaunavottun var komið á 2017 en það var Þorsteinn Víglundsson, þá félags- og jafnréttisráðherra, sem mælti fyrir frumvarpi þessa efnis. Þetta var í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar en hún sprakk í loft upp vegna „uppreist æru-málsins“. Þorbjörg Sigríður var á þeim tíma aðstoðarmaður Þorsteins og Diljá segir hana mann að meiri að hafa haft kjark til að bakka með þetta mál sem oftast hefur verið kennt við Viðreisn. „Algjörlega. Ég vil hrósa henni sérstaklega. Það þarf kjark til að viðurkenna mistök,“ segir Diljá. Eins og sjá má hér ofar gekk mikið á þegar málið var samþykkt á sínum tíma og þurfti Brynjar Níelsson þá að gleypa æluna, eins og frægt er orðið. Afar svifaseint kerfið Diljá Mist telur að ganga hefði mátt lengra. „Þess vegna sátum við hjá við lokaafgreiðslu. Við kusum með niðurlagningu við 2. umræðu og vorum með breytingartillögu um að nýja kerfið yrði valkvætt. Því var hafnað. Við vildum því ekki kjósa með nýju kerfi, nýrri tilraun,“ segir Diljá Mist en hún lítur engu að síður á afgreiðslu þessa máls nú sem sigur. Diljá Mist og Þorbjörg Sigríður eftir afgreiðslu málsins. Diljá lýkur upp miklu lofsorði á dómsmálaráðherra og segir hana mann að meiri. En liggur eitthvað fyrir um hversu mikið þetta kerfi hefur kostað landsmenn frá upphafi? „Það er góð spurning. Nei, en mig minnir að Samtök atvinnulífsins hafi verið með himinháan verðmiða á þessu,“ segir Diljá Mist sem hefur lengi barist gegn jafnlaunavottuninni. Hún var einmitt að skoða það þegar Vísir hafði samband við hana og það eru orðnar býsna margar ræður, ályktanir og viðtöl sem hún hefur farið í vegna þessa máls. Saga þín í þessu máli er ef til vill dæmigerð fyrir það hversu svifaseint kerfið er. Og því sem eitt sinn hefur verið komið á, það verður eigi svo glatt af tekið? „Sammála því. En þetta segir manni að óbreyttir þingmenn, jafnvel í stjórnarandstöðu, eigi að hamast.“
Alþingi Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Jafnréttismál Stjórnsýsla Tengdar fréttir Diljá Mist segir hræsni einkenna íslenska femínista Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins dró ekki af sér í hlaðvarpsþættinum Ein pæling; hún sagði innflytjendur fá „súkkulaðipassa“ hjá íslenskum femínistum í mannréttindamálum. Hún talaði umbúðalaust út um skoðun sína á íslenskum femínistum sem hún telur hræsnara. 17. júlí 2024 10:47 Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Frumvarp dómsmálaráðherra um að afnema núverandi kerfi um séríslenska jafnlaunavottun og -staðfestingu fyrirtækja og stofnana var til umræðu og afgreiðslu á Alþingi liðinni viku. 4. maí 2026 08:30 Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi hvernig gengi að afleggja hina umdeildu jafnlaunavottun. Þorbjörg Sigríður sagði að það yrði á þessu ári. 14. janúar 2026 15:55 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Sjá meira
Diljá Mist segir hræsni einkenna íslenska femínista Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins dró ekki af sér í hlaðvarpsþættinum Ein pæling; hún sagði innflytjendur fá „súkkulaðipassa“ hjá íslenskum femínistum í mannréttindamálum. Hún talaði umbúðalaust út um skoðun sína á íslenskum femínistum sem hún telur hræsnara. 17. júlí 2024 10:47
Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Frumvarp dómsmálaráðherra um að afnema núverandi kerfi um séríslenska jafnlaunavottun og -staðfestingu fyrirtækja og stofnana var til umræðu og afgreiðslu á Alþingi liðinni viku. 4. maí 2026 08:30
Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi hvernig gengi að afleggja hina umdeildu jafnlaunavottun. Þorbjörg Sigríður sagði að það yrði á þessu ári. 14. janúar 2026 15:55