Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar 2. júní 2026 16:00 Framkvæmdir eru nú hafnar við vindorkuver Landsvirkjunar á Vaðöldu. Þetta er stórframkvæmd í orkuöflun með umtalsverð áhrif. Framleiðslugeta vindorku er meira á veturna en á sumrin sem er einmitt öfugt við vatnsaflsvirkjanir. Kerfislega vinna því vatn og vindur vel saman. Á Vaðöldu er verið að reisa 28 vindmyllur sem er ætlað að framleiða raforku, en hvað þýðir það nákvæmlega? Raforka Raforka er nefnilega ekki áþreifanleg og erfitt að upplifa hana beint án þess hreinlega að snerta rafmagnsgirðingu sem ekki er hægt að mæla með. Raforka er svolítið vanmetin sem vara enda streymir hún bara til okkar í gegnum flókið net raflagna og er tiltölulega ódýr, allavega miðað við mikilvægi hennar. Raforka er mögnuð vara sem knýr nánast allt í okkar daglega lífi. Internet, tölvur, sjónvörp, ljós, farsímar, kælar, frystar, eldavélar, dælur, eftirlitskerfi, rafhjól og rafbílar, allt eru þetta einskis nýtir hlutir ef raforkuna skortir. Flest okkar myndu setja raforku á lista yfir þær vörur sem við gætum síst verið án og í nútímasamfélagi væri líklega fátt sem myndi toppa hana í mikilvægi fyrir utan matvöru. Samt sem áður er raforkukostnaður hverfandi hluti af heildarútgjöldum heimila. Samkvæmt rannsókn Hagstofunnar á útgjöldum heimilanna er hluti raforku að jafnaði innan við 3% af heildarútgjöldum heimila. Líklega myndu fáir gefa mikilvægi raforku á heimilum jafnlága einkunn og sem nemur hlutfalli hennar af heildarútgjöldum. Stærðir Eins og fram hefur komið er Vaðölduver 120 MW að stærð, en hvað þýðir þetta á mannamáli? Áætluð framleiðslugeta Vaðölduvers er 440 GWst eða 440 milljónir kWst. Þetta eru talsvert margar kWst, en hvað er hægt að gera við þessi verðmæti? Samkvæmt raforkuspá nota meðalheimili um 4.100 kWst á ári. Árleg framleiðslugeta Vaðölduvers samsvarar því raforkunotkun um 107 þúsund meðalheimila. Meðalrafbíll notar um þrjú þúsund kWst á ári. Árleg framleiðslugeta Vaðölduvers samsvarar því raforkunotkun um 145 þúsund rafbíla. Hafa ber í huga að þetta er umfang framleiðslunnar á ári og dugar ekki til að anna breytilegri aflþörf allra heimila eða rafbílana á hverjum tíma fyrir sig. Þessu má líkja við kleinuverksmiðju sem framleiðir gríðarlegt magn af kleinum á ári en getur ekki annað eftirspurn þegar þrjú þúsund fermingarveislur lenda á sömu helgi. Olía Gróflega notar meðal fólksbíll um þúsund lítra af eldsneyti á ári. Ef Vaðölduver væri olíulind, sem nýtt væri til að knýja fólksbíla, væri framleiðsla lindarinnar 145 milljónir lítra á ári eða um 400 þúsund lítrar á dag sem samsvarar um 2.500 olíutunnum á dag. Ef olíutunnurnar sem þessi ímyndaða olíulind myndi framleiða á hverju ári væru lagðar niður í röð eftir þjóðveginum þá myndu tunnurnar ná frá Reykjavík til Húsavíkur og aftur til baka. Þetta er áþreifanleg birtingarmynd á verðmætum en sorglegt að þurfa að breyta þessum tölum í jarðefnaeldsneyti til ná fram myndrænum magntölum. Losun gróðurhúsalofttegunda frá þessari ímynduðu olíu væri rúmlega 350 þúsund tonn CO2 en losun frá raforkuframleiðslunni er auðvitað lítil sem engin. Höfundur er sviðsstjóri sviðs orkuskipta og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Landsvirkjun Umhverfismál Sigurður Ingi Friðleifsson Vindorkuver við Vaðöldu Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar