Neytendur

Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina

Lovísa Arnardóttir skrifar
Íslendingar þekkja eflaust margir Spar-verslanir erlendis.
Íslendingar þekkja eflaust margir Spar-verslanir erlendis. Vísir/Getty

Fyrstu Spar-verslanirnar verða opnaðar á laugardaginn við Barónsstíg í Reykjavík og Staðarberg í Hafnarfirði. Greint var frá því í febrúar að Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 yrðu Spar.

Í tilkynningu kom fram að Drangar, móðurfélag Samkaupa, hefði skrifað undir samning við alþjóðlegu verslunarkeðjuna SPAR International um notkun vörumerkisins hérlendis og að þeirra markmið væri að allar verslanir 10–11, Krambúðar og Kjörbúðar yrðu orðnar Spar-verslanir fyrir lok árs 2027.

Þar kom einnig fram að Spar hafi verið stofnað í Hollandi árið 1932 og reki í dag verslunarnet með yfir 13.800 verslanir í 50 löndum. Samkaup hf. er verslunarfyrirtæki á dagvörumarkaði sem rekur 60 verslanir um allt land. Samkaup er dótturfélag Dranga hf.


Tengdar fréttir

Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní

Samkaup hefur aukið eignarhlut sinn í Kjötkompaníinu upp í 48 prósent samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Samkaup keypti 38 prósenta hlut í október en samkvæmt tilkynningu vildi félagið auka hlut sinn vegna góðs samstarfs.

Skel metið á „hálf­virði“ í saman­burði við önnur félög í smásölu og þjónustu

Markaðsgengi Skel er um þrjátíu prósent lægra en jafngildir innra virði þess, sem má meðal annars rekja til óvissu um virði óskráðra eigna, en í nýrri greiningu er fjárfestingafélagið sagt verulega vanmetið á markaði. Þar er þeirri spurningu velt upp hvort munurinn í verðlagningu á Skel borið saman við önnur skráð félög sem starfa í smásölu og þjónustu „eigi að vera svona gríðarlega mikill“ en fjárfestingafélagið er í þeim samanburði á tæplega „hálfvirði“ miðað við það sem reksturinn skilar hluthöfum í hagnað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×