Heimsmeistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkrahúsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2026 09:32 Ragne Wiklund fagnar heimsmeistaratitli sínum í mars síðastliðnum. Getty/Gerrit van Keulen/ Norska skautakonan og heimsmeistarinn Ragne Wiklund var á dögunum lögð inn á sjúkrahús með hraði.
Alvaran rann fljótt upp fyrir Wiklund þegar hún leitaði á bráðamóttöku eftir helgi með mikla verki. Í samtali við norska ríkisútvarpið segir ríkjandi heimsmeistari í samanlögðum greinum á skautum að hún hafi áttað sig á því að eitthvað væri að á æfingu. „Ég hélt að þetta væru tíðaverkir,“ sagði Ragne Wiklund. „Svo ég hjóla nokkrar lotur, en það er svo sárt. Að lokum skil ég að eitthvað er að og þá get ég alveg eins farið á bráðamóttökuna. Þaðan er ég send beint á sjúkrahús og í aðgerð. Þetta magnaðist hratt,“ sagði Wiklund. Norska skautastjarnan var með bólginn botnlanga sem þurfti að fjarlægja. Eftir aðgerðina verður Wiklund að búa sig undir æfingahlé. „Ég verð að vera róleg svo allt geti gróið,“ sagði hún. Wiklund vann þrenn verðlaun í skautahlaupi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina í byrjun ársins, tvenn silfurverðlaun og eitt brons. Hún tryggði sér svo heimsmeistaratitilinn í samanlögðum greinum á skautum á HM í Hollandi í mars. Það gerði hún með því að vinna bæði 3000 metra og 5000 metra skautahlaupið, enda í þriðja sæti í 1500 metra skautahlaupi og ná sjötta besta tímanum í 500 metra skautahlaupi.
Skautaíþróttir Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Enski boltinn Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport Fleiri fréttir Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira