Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 5. júní 2026 20:06 Skoðum saman í þessari grein nokkrar atriði sem tengist umræðunni um ESB. „Já“ í ágúst er ekki já við aðild. „Já“ er já við upplýsingum, já við samningaviðræðum og já við því að þjóðin fái tækifæri til að meta raunverulegan samning áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Þegar við tökum slíka ákvörðun eigum við ekki aðeins að horfa til næstu mánaða eða næsta kjörtímabils. Við skulum gefa okkur smá tíma til að horfa 20, 50 og jafnvel 100 ár fram í tímann. Munum að mestar líkur eru á friði meðal samstarfs- og vinaþjóða. Tækifæri ungs fólks skipta mestu máli Almennt eru ungir Íslendingar vel menntaðir og tilbúnir í nýsköpun. En eiga ekki í dag sömu tækifæri vegna hárra vaxta, meiri verðbólgu og óstöðugs efnahagsumhverfis. Mörg ungmenni upplifa að það sé orðið sífellt erfiðara að eignast húsnæði, byggja upp eigin fjárhag og skipuleggja framtíðina. Af hverju þurfa Íslendingar að greiða miklu meira fyrir húsnæði en Danir? Af hverju þurfa venjuleg íslensk fyrirtæki að greiða hærri fjármagnskostnað en samkeppnisaðilar þeirra í Evrópu? Af hverju flytja efnilegustu og verðmætustu sprotafyrirtæki Íslands höfuðstöðvar sínar úr landi þegar kemur að stórum fjárfestingum og meiri verðmætasköpun? Það eru ekki til einfaldar lausnir á öllum þessum áskorunum. En það er eðlilegt að skoða hvort nánara samstarf við Evrópu geti skapað betri skilyrði fyrir komandi kynslóðir. Getum við tryggt okkar öryggi betur? Heimurinn hefur breyst mikið á síðasta árum. Hverjar verða breytingarnar á næstu 100 árum? Nú geisar stríð í Evrópu. Spenna eykst á Norðurslóðum og þar með mikilvægi Norður-Atlantshafsins. Við Íslendingar upplifum með reglulegu millibili eldgos, jarðhræringar og náttúruhamfarir sem mjög erfitt er að standa undir ein. Viljum við ekki sjá hvort við fáum í samningi meira meiri stuðning og öryggi þegar kemur að náttúruhamförum, innviðavernd, netöryggi og frjálsum viðskiptum? Smá ríki geta náð langt innan ESB Reynslan sýnir að smáríki innan ESB geti náð langt og það opnist líka tækifæri fyrir vel menntaða einstaklinga innan stjórnsýslunnar. Lítil ríki eins og Malta, Danmörk og Írland hafa sýnt að fámennar þjóðir geta verið áhrifamiklar og samkeppnishæfar innan ESB. Þau nýta stærri og fjölbreyttari markaði, aukna samvinnu og fá stöðugra rekstrarumhverfi til að styrkja sitt atvinnulíf og velsæld. Við eigum að læra af þessum smáu ríkjum innan ESB og finna okkar leiðir til að bæta samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Hvað hefur Ísland fram að færa? Við búum yfir reynslu af sjálfbærri nýtingu auðlinda, endurnýjanlegri orku, fiskveiðistjórnun, björgunarsveitum, jafnréttismálum og tæknilausnum sem vakið hafa athygli víða um heim. Við eigum sterka menningu, öflugt menntakerfi og samfélag sem hefur oft verið í fararbroddi á sviði mannréttinda og lýðræðis. Við eigum ekki að nálgast þessa umræðu af vanmáttarkennd, heldur með opinn huga og okkar góða íslenska hugrekki. Óvissan í atvinnulífi framtíðarinnar er mikil og við vitum ekki hvernig vinnumarkaðurinn þróast á næstu áratugum. En það veitir forskot að vera strax upplýst um hvaða þarfir þarf að leysa innan ESB, tengt 450 milljónum í viðskiptum við allan heiminn. Þannig stöndum við jafnfætis þegar kemur að nýjum atvinnutækifærum og getum betur tryggt góða og verðmæta atvinnu fyrir Íslendinga framtíðarinnar. Já við upplýsingum og framtíðarmöguleikum Þann 29. ágúst er þjóðin ekki að kjósa um aðild að Evrópusambandinu. Við erum einfaldlega að ákveða hvort við viljum sjá samninginn áður en við tökum afstöðu. Það ættu allir að sjá að það er tæpast boðlegt að hafna samningi sem enginn hefur séð. Það er ómögulegt að taka upplýsta ákvörðun án raunverulegs samnings. Þess vegna skulum við segja já í ágúst. Höfundur er MS í stjórnun og stefnumótun og stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar