Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. júní 2026 09:32 Towns og Wembanyama hafa háð harða baráttu. Gregory Shamus/Getty Images New York Knicks unnu annan sigur gegn San Antonio Spurs í úrslitaeinvígi NBA deildarinnar. 105-104 urðu lokatölur og Knicks halda heim til New York með 2-0 forystu.
Knicks eru nú aðeins tveimur sigrum frá sínum fyrsta meistaratitli í rúm fimmtíu ár. Þetta er aðeins í þriðja sinn sem lið tekst að vinna fyrstu tvo leiki úrslitaeinvígisins á útivelli. Chicago Bulls gerðu það 1993 og Houston Rockets léku afrekið eftir 1995. Bæði lið urðu meistarar. Eftir hörkuspennandi leik milli Knicks og Spurs í nótt réðust úrslitin í lokasókninni. Leikurinn var jafn þegar Victor Wembanyama greip mikilvægt frákast fyrir Spurs en kastaði boltanum frá sér í óðagoti. Hann hitti ekki samherja og þurfti þá að brjóta á Jalen Brunson. Brunson skoraði úr fyrra vítinu og náði eins stigs forystu fyrir Knicks. Wembanyama tókst síðan ekki að hitta úr lokaskoti leiksins sem má sjá hér fyrir neðan. KNICKS GET THE HUGE DEFENSIVE STOP TO WIN GAME 2 🚨THEY'VE WON 13 STRAIGHT AND LEAD THE NBA FINALS, 2-0 🚨 pic.twitter.com/5V67qIcT7F— NBA (@NBA) June 6, 2026 Spurs höfðu barist til baka í fjórða leikhluta eftir að hafa verið fjórtán stigum undir. Wembanyama fór fremstur í flokki í því áhlaupi og skoraði tíu stig en á endanum kom allt fyrir ekki. „Þetta er mest pirrandi hlutur í heimi, að kasta leiknum frá sér eftir að hafa lagt inn alla þessa vinnu. Ég kastaði leiknum. Ég klúðraði. Stundum er eins og líkaminn hreyfi sig hraðar en hugurinn. Við þurftum að vinna þennan leik. Þetta var okkar leikur. En nú er þetta bara búið. Mun ég sjá eftir þessu? Auðvitað. Mun ég nota þetta sem eldsneyti inn í næsta leik? Að sjálfsögðu,“ sagði Wembanyama við ESPN eftir leik. Á hinum endanum átti Karl Anthony Towns frábæran leik fyrir Knicks, skoraði 21 stig og greip 13 fráköst. Mikal Bridges og Jalen Brunson fylgdu honum eftir með sitt hvor 20 stigin. A TRIO OF KNICKS STARRED IN GAME 2 🗽KAT: 21 PTS, 13 REB, 4 AST, 3 3PMBRIDGES: 20 PTS, 6 REB, 6 AST, 4 3PMBRUNSON: 20 PTS, 5 REB, 6 AST, 5 STLKNICKS WIN GAME 2.2-0 SERIES LEAD IN THE NBA FINALS. pic.twitter.com/NaptpmsTUF— NBA (@NBA) June 6, 2026
NBA Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Hadjar frá í aðra keppni Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Sjá meira