Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar 10. júní 2026 13:46 Furðulegt hefur verið að hlusta á atvinnuvegaráðherra afneita bæði opinberlega og gagnvart félögum sínum í stjórnarmeirihlutanum á þingi (samkvæmt okkar heimildum) að laxahlutur lagareldisfrumvarps hennar búi til nýtt kvótakerfi. Í grein eftir Jóhann Helga Stefánsson, framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga (LV), sem birtist hér á Vísi, er bent á þessa einkennilegu framgöngu ráðherra: „Að mati Landssambandsins er sérstaklega gagnrýnivert að atvinnuvegaráðherra hefur sagt opinberlega að frumvarpið feli ekki í sér nýtt kvótakerfi — þótt ákvæði frumvarpsins segi aðra sögu. Ákvæði frumvarpsins um laxahlut eru byggð á ákvæðum fiskveiðistjórnunarlaganna um aflahlutdeild — sem í daglegu tali er kölluð kvóti. Frumvarpið kveður á um að laxahlutur verði framseljanlegur, leigjanlegur og veðsetjanlegur með nákvæmlega sama hætti og kvótinn,” skrifar Jóhann Helgi. Þetta er mikilvægur kafli úr grein hans vegna þess að svo virðist sem víða vanti skilning á að ef lagareldisfrumvarp atvinnuvegaráðherra verður að lögum, skapar það einmitt nýtt kvótakerfi byggt á fiskveiðistjórnarkerfinu. Þetta vitum við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum því sá sem hefur stýrt vinnunni við gerð lagareldisfrumvarpsins í ráðuneytinu útskýrði fyrir okkur tengslin. Góð fyrirheit Svandísar Haustið 2023 var okkur boðið ásamt félögum okkar hjá NASF og LV til meints samráðs í Matvælaráðuneytinu, einsog Atvinnuvegaráðuneytið hét þá, um nýtt frumvarp um lagareldi. Þáverandi ráðherra Svandís Svavarsdóttir hafði sett þessa vinnu af stað af miklum metnaði og áhuga en varð frá að hverfa vegna veikinda þegar verkið var nýhafið. Sá sem stýrði vinnunni innan ráðuneytisins var Kolbeinn Árnason, þá skrifstofustjóri fiskeldis í ráðuneytinu en fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Á einum af fyrstu samráðsfundunum útskýrði Kolbeinn fyrir okkur laxahlutinn og að fyrirmyndin væri einmitt fiskveiðistjórnunarkerfið. Af hverju atvinnuvegaráðherra vill ekki kannast við þessa tengingu er furðulegt. Ekki þarf annað en að bera saman orðalag lagareldisfrumvarps hennar við lög um stjórn fiskveiða til að sjá skyldleikann. Heilu kaflarnir eru orðrétt þaðan. Þessi samráðsvinna sem okkur var boðið til veturinn 2023 til 2024 fór ekki vel. Í janúar 2024 fór Svandís í veikindaleyfi. Flokkssystir hennar og þáverandi forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, leysti hana af sem matvælaráðherra þar til hún sjálf kvaddi og fór í forsetaframboð í byrjun apríl. Kom það því í hlut Bjarkeyjar Olsens að leggja hið nýja lagareldisfrumvarp fram á þingi bókstaflega tveimur vinnudögum eftir að hún kom í ráðuneytið. Hver þeirra þriggja bar pólitíska ábyrgð á frumvarpinu er sérstakt umhugsunarefni. Réttindi að gjöf Þegar þarna var komið við sögu var SFS búið að ná öllu sínu fram í matvælaráðuneytinu í þessu furðulega samráðsferli. Það var allan tímann undir stjórn áðurnefnds Kolbeins. Hann varð á dögunum ráðuneytisstjóri Atvinnuvegaráðuneytisins og hefur líka stýrt þeirri útgáfu lagareldisfrumvarpsins sem Alþingi hefur nú til meðferðar og byggir að stærstum hluta á þeirri vinnu sem hófst 2023. Nú hafa hins vegar bæst við enn verri kaflar sem eru sérsniðnir fyrir fjögur aðildarfélög SFS. Þrátt fyrir augljósan skyldleika laxahlutar lagareldisfrumvarpsins við lög um stjórn fiskveiða er mikilvægt að átta sig á ákveðnum grundvallarmun þar á milli. Með fiskveiðistjórnunarkerfinu var tekið nauðsynlegt skref til að tryggja sjálfbæra nýtingu á náttúruauðlindum þjóðarinnar. Laxahlutur atvinnuvegaráðherra festir aftur á móti í sessi einstaklega ósjálfbæran og mengandi iðnað, sem skaðar náttúru og lífríki Íslands og verðmæti bænda í sveitum landsins. En rétt einsog með umdeildasta hluta kvótakerfisins mun laxahluturinn færa örfáum að gjöf réttindi sem þeir greiddu ekkert fyrir en geta framselt eða leigt ef lagareldisfrumvarpið verður óbreytt að lögum. Höfundur er talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Kaldal Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun