Formúla 1

Náði loks sigri með Ferrari

Andri Broddason skrifar
Hamilton náði loks sínum fyrsta sigri með Ferrari í Barcelona kappaktrinum í dag.
Hamilton náði loks sínum fyrsta sigri með Ferrari í Barcelona kappaktrinum í dag. Rudy Carezzevoli/Getty Images

Lewis Hamilton vann sinn fyrsta sigur fyrir Ferrari í Barcelona-kappakstrinum í dag. Þetta er fyrsti sigur hans síðan í Belgíu 2024 með Mercedes.

Lewis Hamilton byrjaði kappaksturinn í dag í öðru sæti á eftir George Russell hjá Mercedes sem byrjaði fremst. Hamilton byrjaði keppnina á mýkri dekkjum og var því greinilega á annarri keppnisáætlun en ökumennirnir í kring.

Hamilton keyrði með ógnarhraða en stafrænn öryggisbíll kom á fullkomnum tíma fyrir hann sem hleypti honum í fyrsta sætið á betri dekkjum en aðrir ökumennirnir fyrir aftan hann.

Fyrir aftan hann voru Mercedes-ökumennirnir Kimi Antonelli og George Russell að berjast en í lok keppninnar bilaði bíll Antonelli og náði hann því ekki að klára keppnina.

Hamilton hefur lengi verið að ýja að því að fyrsti sigur hans væri að koma og kom hann loksins í dag. George Russell endaði í öðru sæti og Lando Norris hjá McLaren í því þriðja.

Þetta er fyrsti verðlaunapallurinn þar sem allir þrír ökumennirnir eru breskir síðan 1968 á kappakstursbrautinni Watkins Glen. Þar voru Jackie Stewert, Graham Hill og John Surtees á verðlaunapalli.

Með sigrinum nær Hamilton að minnka muninn í Kimi Antonelli sem situr í efsta sæti heimsmeistaramótsins. Munurinn milli þeirra er nú aðeins 41 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×