Formúla 1

„Ég er þeim ævin­lega þakk­látur“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lewis Hamilton fagnar sigri sínum í Barcelona en hann var búinn að bíða lengi eftir sínum fyrsta sigri með Ferrari.
Lewis Hamilton fagnar sigri sínum í Barcelona en hann var búinn að bíða lengi eftir sínum fyrsta sigri með Ferrari. Getty/Clive Rose

Lewis Hamilton vann sinn fyrsta kappakstur í dag sem ökumaður Ferrari en hann keyrði hraðar en allir í Barcelona-Catalunya kappakstrinum. Lewis Hamilton fagnaði líka sigrinum vel og var kátur í viðtali eftir að hann tók við verðlaunum.

„Fyrst verð ég að byrja á því að segja risastórt grazie við alla hér, liðið mitt hér, Ferrari, alla í verksmiðjunni, Fred fyrir að trúa á mig og fá mig í þetta lið,“ sagði Lewis Hamilton eftir sigurinn.

„Þetta byrjaði allt með draumi á síðasta ári, sem virtist nánast ómögulegur á þeim tíma, en við gáfumst aldrei upp og liðið hélt áfram að lyfta mér upp. Við gerðum svo margar breytingar og svo margar umbætur,“ sagði Hamilton.

„Auk þess á ég bestu stuðningsmenn sem íþróttamaður getur beðið um. Þannig að takk, takk allir,“ sagði Hamilton.

Um hvar þessi sigur raðast meðal 106 sigra hans á ferlinum: „Þeir eru allir sérstakir á sinn hátt. En þessi er eitthvað allt annað. Ég horfði á Ferrari ná öllum þessum árangri þegar ég var yngri, horfði á það í sjónvarpinu og á meðan ég hef keppt hef ég alltaf horft á skjáina og velt því fyrir mér hvernig það væri að sigra í þeim bíl og nú er það orðið að veruleika,“ sagði Hamilton.

„Allir hafa lagt hart að sér fyrir þetta og allir eiga það skilið. Ég er þeim ævinlega þakklátur og þetta er bara sá fyrsti af, vonandi, mörgum. Frábær þjónustuhlé í dag, frábær herkænska. Bíllinn var frábær, Forza Ferrari,“ sagði Hamilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×