Sakar þýska landsliðið um óheiðarleika Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 13:31 Emerse Faé, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, heldur hér á bolta sem Þjóðverjinn Joshua Kimmich vill endilega koma sem fyrst í leik á ný. Getty/Robert Cianflone Emerse Faé, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, gagnrýndi það sem hann kallaði skort á heiðarlegum leik frá Þýskalandi í 2-1 tapi liðs síns á heimsmeistaramótinu um helgina.
Faé var reiður eftir að varnarmaður hans, Wilfried Singo, setti boltann út af þar sem hann var meiddur en Nathaniel Brown, vinstri bakvörður Þjóðverja, ákvað að gefa Fílabeinsströndinni ekki boltann aftur og hóf þess í stað þýska sókn með innkasti. „Ég sagði honum [Brown] að sýna smá auðmýkt,“ sagði Faé við fréttamenn eftir leikinn. „Hann átti frábæran leik og hann þarf ekki að vera með leiðindi við okkur af því að hann er að tapa eða staðan er 1-1 og hann vill vinna.“ „Við hefðum viljað sjá meiri heiðarlegan leik frá Þýskalandi. Við hefðum viljað að þeir hefðu gefið okkur boltann aftur þegar Singo meiddist. Þeir eru mikil fótboltaþjóð og við tökum þá til fyrirmyndar, svo ég varð fyrir vonbrigðum með skort þeirra á heiðarlegum leik,“ sagði Faé. Emerse Faé, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, ræddi við Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfara Þýskalands, eftir leikinn og sagði honum örugglega sína skoðun líka þar.Getty/Megan Briggs Fílabeinsströndin virtist vera skrefi á undan Þýskalandi allan fyrri hálfleikinn á laugardag og stóran hluta af þeim seinni, þar sem mark miðjumannsins Franck Kessié í fyrri hálfleik þaggaði niður í þýskum stuðningsmönnum um langa hríð. En þýski hluti áhorfendastúkunnar, sem var uppseld, sprakk úr fögnuði þegar Deniz Undav skoraði sigurmarkið, hans annað í leiknum. „Bæði lið áttu skilið að vinna og fengu færi til að vinna leikinn,“ sagði Faé. „Vel gert hjá Þýskalandi. Þeir unnu leikinn vegna reynslu sinnar. Við áttum frábæran leik og ég er virkilega stoltur af því hvernig leikmenn mínir spiluðu gegn einu af sigurstranglegustu liðum keppninnar. Við verðum að nýta þetta tap það sem eftir er af mótinu,“ sagði Faé.
Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Margfaldir meistarar fóru í hlutverk kylfusveina fyrir Íslandsmótið Lukaku lætur ekki sjá sig Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Alcaraz dregur sig aftur úr keppni Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah Sjá meira