Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Smári Jökull Jónsson skrifar 22. júní 2026 12:05 Ástþóra Kristinsdóttir er sérfræðingur í ofbeldismálum hjá Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar. Vísir/Heilsugæslan/Vilhelm Sérfræðingur í ofbeldismálum hjá þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum landsins en boðað hefur verið til samfélagmiðlaátaks um kyrkingartak. Margir unglingar telji það hluta af eðlilegu kynlífi.
Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á hættum kyrkingartaks, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en einnig kynlífi. Sérfræðingur í ofbeldismálum hjá þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu segir nýjar rannsóknir sýna að hættan sé meiri en áður var talið, hver einasta sekúnda sem trufli blóðflæði til heila skipti máli. „Margir krakkar sem eru spurðir til dæmis hvort að þeir hefðu prófað þetta, og já þau höfðu prófað þetta og töldu að þetta ætti að vera eitthvað sem allir ættu að prófa,“ segir Ástþóra Kristinsdóttir hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. „Hafa ekki vit til að greina á milli hvað er eðlilegt og hvað ekki“ Markmiðið með samfélagsmiðlaátakinu sé að koma af stað umræðu um að kyrkingartak sé ekki hluti af eðlilegu kynlífi. „Þetta er klámvæðingin höldum við. Krakkarnir okkar eru á horfa á alls konar myndbönd og hafa ekki vit til að greina á milli hvað er eðlilegt og hvað ekki. Þau þurfa bara að fá betri fræðslu og þetta er partur af því.“ „Við viljum að þau fái fræðslu um þetta þannig að þau geti tekið sjálfstæða ákvörðun,“ segir Ástþóra í viðtali sem birtist í hádegisfréttum Bylgjunnar. Dæmi um að liðið hafi yfir unglingsstúlkur Verið er að útbúa fræsluefni fyrir skólana sem skólahjúkrunarfræðingar geta nýtt sem hluta af námsefni í kynfræðslu. Og er þörf á þeirri fræslu alveg niður í grunnskóla? „Það er alveg þörf á því að byrja bara strax þegar krakkarnir okkar eru að byrja að stunda kynlíf og prófa sig áfram. Þá þurfum við að koma skýrt áfram hvað er eðlilegt og hvað ekki.“ Ástþóra segir kyrkingartak oftast vera kynbundið, strákar séu að taka stúlkur kyrkingartaki. „Við höfum heyrt alls konar sögur af því þar sem unglingar hafa prófað þetta af því að þeir töldu að það ætti að prófa þetta og þá jafnvel liðið yfir stúlkuna og drengurinn orðið dauðhræddur og svo framvegis. Það eru mjög stutt mörk þarna á milli sem við þurfum að koma til skila.“
Kynbundið ofbeldi Lögreglumál Heilbrigðismál Börn og uppeldi Grunnskólar Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira