Hrafnagilshverfi stækkar ört Bjarki Sigurðsson skrifar 26. júní 2026 21:26 Hermann Ingi Gunnarsson er oddviti Eyjafjarðarsveitar. Vísir/Bjarki Á Hrafnagili hefur gríðarleg uppbygging orðið síðustu ár og fær skólinn þar meiriháttar yfirhalningu í sumar. Oddvitinn segir ánægjulegt hversu margt ungt fólk er að leita í bæinn.
Það skiptir nánast engu máli í hvaða átt er litið í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit. Það er alls staðar verið að byggja hús, laga vegi, græja og gera. Hrafnagil er í um korters akstursfjarlægð frá Akureyri. Síðustu ár hefur bærinn vaxið ört. Um aldamót bjuggu þar 135 manns en í dag eru íbúar fjögur hundruð talsins. „Það er bara mikil jákvæðni og menn eru að horfa mikið til framtíðar í sveitinni,“ segir Hermann Ingi Gunnarsson, oddviti Eyjafjarðarsveitar. Er ungt fólk mikið að flytja hingað? „Já, sérstaklega ungt fólk. Ég held það sækist í skólann. Fólk sem ólst hér upp er að sækja heim og þar er nálægðin við Akureyri mikilvæg. Við getum sótt þá þjónustu sem við þurfum þar en lífsgæðin sem við búum við hér.“ Nýr leikskóli var nýverið opnaður innan veggja grunnskólans sem fær nú meiriháttar yfirhalningu. „Svakalega flottur leikskóli og mjög tímabær framkvæmd. Það fer vel um börnin á Krummakoti. Næsti áfangi er að byggja ofan á skólaálmuna sem liggur austur vestur. Við ætlum að koma unglingunum okkar upp á efri hæðina, við erum mjög spennt að ná þeim úr kjallaranum. Ég held það sé mikil áskorun fyrir iðnaðarmennina að vera í framkvæmdum með tvö hundruð börn, þrjú hundruð ef við tökum leikskólabörnin með, og allt starfsfólkið á svæðinu. Það er meira en að segja það,“ segir Ólöf Ása Benediktsdóttir, skólastjóri Hrafnagilsskóla. Ólöf Ásta Benediktsdóttir er skólastjóri Hrafnagilsskóla. Ólöf Ása fagnaði nýverið tuttugu ára starfsafmæli í Hrafnagilsskóla. „Mér finnst ég ekkert mjög gömul en það er talsvert af börnum nemenda minna sem eru komin í skólann. Ég hef verið að kenna börnum nemenda minna. Ég kem hingað 25 ára en bý samt á Akureyri. Það er rosalega gott að vera hérna, ég vil hvergi annars staðar vera. Það er nú bara þannig,“ segir Ólöf Ása.
Eyjafjarðarsveit Skipulagsmál Skóla- og menntamál Húsnæðismál Leikskólar Grunnskólar Sveitarstjórnarmál Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Sjá meira