Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar 27. júní 2026 09:02 Ábyrgð þingmanna er mikil og oft vanmetin. Samfélagið er flókið og verður flóknara með hverju árinu sem líður. Verkefnin verða sífellt fleiri. Við þurfum að styrkja heilbrigðiskerfið. Þjóðin eldist og margar tímabærar umbætur hafa setið á hakanum of lengi. Menntakerfið stendur líka frammi fyrir áskorunum á sama tíma og fjárheimildir til framhaldsskóla dragast saman. Án góðrar menntunar verður lítið úr áformum um aukna framleiðni og velmegun. Samgöngur er enn ein áskorunin og úrbóta er þörf um allt land. Loks má ekki gleyma ríkisfjármálunum, enda hefur reynst erfitt að halda þeim í jafnvægi. Eitt er að horfa á einstök mál. Annað er að ná utan um heildarmyndina. Og í því felst meginábyrgð okkar þingmanna. Að mæta breyttum forsendum Ég hef gegnt embætti þingflokksformanns Framsóknar frá lokum febrúar, eða í um fjóra mánuði. Á þeim tíma hef ég sannfærst um að ábyrg pólitík snýst ekki um að halda fast í áætlanir þegar veruleikinn breytist. Hún snýst um að mæta breyttum forsendum af yfirvegun. Góður stjórnandi krefst reglulega uppfærðra upplýsinga frá fjármálastjóra sínum og bregst við þeim á viðeigandi hátt. Það sama á við um ríkisstjórn. Hún verður að taka mið af nýjum efnahagshorfum hverju sinni og endurmeta áform sín í samræmi við það. Nýsamþykkt fjármálaáætlun minnir okkur á þetta. Forsendur hennar hafa veikst verulega á þeim þremur mánuðum frá því hún var lögð fram. Þá er það verkefni okkar allra að horfast í augu við stöðuna af heiðarleika og sýna hvernig markmið hennar eiga að nást. Þetta er hvorki ádeila á ríkisstjórnina né einstaka ráðherra. Það er margt jákvætt í gildandi áætlun. En við verðum einfaldlega að temja okkur ábyrgari vinnubrögð í áætlanagerð ríkisins. Atvinnulíf um land allt Eitt af því sem mestu skiptir er staða atvinnumála um land allt. Það er ekki nóg að tala um nýsköpun, nýjar stoðir og aukna framleiðni ef aðeins er horft til tækifæra á suðvesturhorni landsins. Efnahagshorfur hafa enn fremur versnað og frekari verðmætasköpun verður að geta átt sér stað um allt land. Til þess þurfa undirstöðurnar að vera í lagi. Þar skipta t.a.m. samgöngur höfuðmáli. Án öruggra vegasamgangna og fjarskiptainnviða verður atvinnustefna á landsbyggðinni orðin tóm. Samþykkt samgönguáætlunar til 2040 var því eitt af stóru málum vorsins. En gleymum því ekki að samgönguáætlun er langhlaup. Margar ríkisstjórnir koma að framkvæmd hennar næstu fimmtán ár. Mörg af stærstu verkefnum hennar klárast ekki á einu kjörtímabili, og fjármagnið er takmarkað. Því skiptir öllu að fjármögnun aðgerða sé trúverðug til langs tíma. Því er rétt að halda því til haga að forsendur fjármálaáætlunar hafa reynst mun veikari en gert var ráð fyrir í nýsamþykktri fjármálaáætlun. Til að markmið hennar nái fram að ganga er líklegt að skera þurfi niður í ríkisrekstrinum árið 2027 umfram það sem nú er viðurkennt. Margt er enn fremur á huldu um hvernig hinu ágæta innviðafélagi er ætlað að starfa í reynd. Stofnun þess er þó jákvæð og mikilvægt að vel takist til við framkvæmd þess. Umfram allt er spurningin sú hvort við þurfum ekki að horfast í augu við þá staðreynd að auka þurfi enn frekar fé til samgangna næstu ár. Landið er víðfeðmt og kröfurnar aukast. En einmitt þess vegna verðum við að halda vel á spilunum í ríkisfjármálum og vinna saman að lausn mála. Stóru verkefnin Við höfum ólíkar skoðanir og ólíka hagsmuni. En kjarninn er einfaldur. Við megum ekki hlaupast frá því verki að gera samfélagið betra. Við verðum að horfast í augu við það sem er erfitt og taka höndum saman um lausnir. Stóru verkefnin verða aldrei leyst af einum flokki eða einstökum þingmönnum. Það á við um heilbrigðismál, menntun, afkomu ríkissjóðs og byggðaþróun. Lykilorðið er því samvinna. Samvinna innan þingflokka. Samvinna þvert á flokka. Og umfram allt samvinna meðal fólksins í landinu. Sumarið er tíminn Nú er bjartasti og besti tími sumarsins framundan. Í haust tekur svo við nýtt upphaf og nýr þingvetur. Það er óvissa í efnahagslífinu, en líka tækifæri af ýmsu tagi. Margt verður krefjandi. En þingflokkur Framsóknar mun mæta verkefnunum af ábyrgð, yfirvegun og vilja til að vinna með öðrum. Því stóru verkefnin leysum við ekki hvert í sínu horni. Við leysum þau saman. Það er krafan sem við gerum til okkar sjálfra. Þjóðin á það skilið. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Mest lesið Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar