Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Agnar Már Másson skrifar 26. júní 2026 16:02 Mynd úr safni. Þetta baðlón þarf ekki að tengjast fréttinni beint, en ekki er tekið fram hvaða baðlón er um að ræða í dómnum. Vilhelm Baðlón á suðvesturhorninu hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns sem lenti í vinnuslysi á hálu gólfi og hlaut áverka. Niðurstaðan var því sú að um óhappatilvik hafi verið að ræða sem vinnuveitandanum verður ekki kennt um með saknæmri háttsemi.
Í dómnum segir að starfsmaðurinn fyrrverandi, sem er kona, hafi verið að sækja vaðskó til að ná í óhrein glös út í baðlónið þegar hún rann á blautu gólfi búningsklefans, féll og rak höfuð og öxl í viðarskáp. Í ljós kom við læknaskoðun að hún hefði hlotið heilahristing með langvarandi afleiðingum, svo sem skertu úthaldi og minni, höfuðverkjum og fleira. Sjúkratryggingar Íslands og TM tryggingar höfðu þegar viðurkennt bótaskyldu og fengið sérfræðing til að meta varanlegan miska, sem var metinn 20 stig, og fékk konan greiddar bætur á þeim grundvelli. Þetta mál snerist aftur á móti um skaðabótaábyrgð vinnuveitandans, sem var sýknaður. Tveir fyrrverandi starfsmenn báru vitni um að gólfin í búningsklefunum yrðu reglulega mjög hál og að starfsmenn hefðu ítrekað kvartað. Fram kom í máli þeirra að stjórnendur hefðu ákveðið að setja ekki mottur á gólfin af útlitsástæðum, en sett þess í stað viðvörunarskilti og látið moppa reglulega. Þá vildi starfsmaðurinn fyrrverandi meina að vinnuaðstæður hefðu verið óforsvaranlegar og að gólfið væri óvarin slysagildra. Hún sagði að baðlónið hefði brotið gegn lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og ekki tilkynnt slysið til Vinnueftirlitsins fyrr en 11 mánuðum síðar, sem stefnandi taldi eiga að leiða til rýmri sönnunarkrafna henni í hag. Aftur á móti féllst dómari í Héraðsdómi Reykjaness á það að flísarnar uppfylltu viðeigandi kröfur og staðla. Þá þótti sýnt fram á að baðlónið hefði reynt að stemma stigu við slysahættu með því að bera sérstök efni á gólfin, setja upp viðvörunarskilti og láta þurrka gólfin reglulega. Ekki væri hægt að gera ríkari kröfur en lög og reglur mæltu fyrir um eða krefjast þess að fallhætta væri með öllu útilokuð. Þótt tilkynning til Vinnueftirlitsins hafi dregist breytti það ekki sönnunarstöðu málsins þar sem aðdragandi slyssins var óumdeildur og aðstæður á vettvangi höfðu ekkert breyst. Þá kom fram í mati dómarans að stefnandi hefði starfað hjá lóninu í hálft ár og mátt vita að gólfin gætu verið hál. Niðurstaðan var því sú að um óhappatilvik hafi verið að ræða sem vinnuveitandanum verður ekki kennt um með saknæmri háttsemi. Baðlónið var því sýknað.
Sundlaugar og baðlón Dómsmál Vinnuslys Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira