Körfubolti

Ný lið bætast við

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson leggur hér boltann ofan í leik með Stjörnunni. Sindramenn komust upp í Bónus-deild karla og þeir hafa til að mynda aldrei áður spilað í þeirra efstu.
Ægir Þór Steinarsson leggur hér boltann ofan í leik með Stjörnunni. Sindramenn komust upp í Bónus-deild karla og þeir hafa til að mynda aldrei áður spilað í þeirra efstu. vísir/Diego

Undirbúningur fyrir nýtt körfuboltatímabil er kominn á fullt hjá Körfuknattleikssambandi Íslands, en skráning liða í deildarkeppni vetrarins er langt komin. Samkvæmt upplýsingum frá sambandinu verður metþátttaka í 1. deild kvenna og nokkur ný félög bætast við í neðri deildum karla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu

Alls verða 12 lið í 1. deild kvenna á komandi tímabili, sem er metfjöldi. Þar af eru níu aðallið en þrjú B- eða U-lið taka einnig þátt. Breiðablik og Skallagrímur snúa aftur í deildina eftir nokkurra ára fjarveru og Þór Þorlákshöfn mætir einnig til leiks eftir að samstarfi félagsins við Hamar í meistaraflokki kvenna lauk.

Slitin á samstarfi Hamars og Þórs Þorlákshafnar hafa einnig áhrif á efstu deild, en í kjölfarið tekur Ármann sæti þeirra í Bónusdeild kvenna og heldur þar með sæti sínu í deildinni frá síðasta tímabili.

Í 1. deild karla tekur Hamar við sæti Fylkis. Fylkismenn ákváðu að færa lið sitt niður í 2. deild eftir eins árs veru í 1. deild og því heldur Hamar sæti sínu þrátt fyrir að hafa endað í neðsta sæti deildarinnar á síðasta keppnistímabili.

Áfram verða 18 lið í 2. deild karla og þar vekur athygli að nokkur ný félög hafa skráð sig til leiks. Þar má nefna Augnablik, Íþróttafélag Breiðholts, Mána, Reyni Sandgerði, Smára Varmahlíð og Víði í Garði. Sum þessara félaga eru að taka þátt í deildarkeppni á ný eftir langt hlé en önnur stíga sín fyrstu skref í deildarkerfi KKÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×