Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Kjartan Kjartansson skrifar 30. júní 2026 07:02 Hugmynd Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um að fella niður ETS-skuldbindingar á strandsiglingar virðist hafa siglt í strand í bili. Vísir/Lýður Þrjú ráðuneyti vinna nú að því að leggja af kolefnisgjöld á strandsiglingar í samræmi við tillögu starfshóps innviðaráðherra. Þrátt fyrir að ráðherrann hafi talað um að fella niður ETS-gjöld á strandsiglingar er aðeins til skoðunar að greina áhrif kerfisins á strandflutninga.
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur lagt mikla áherslu á strandsiglingar til vöruflutninga til þess að létta álag á vegakerfi landsins. Starfshópur sem hann skipaði í fyrra lagði fram ýmsar tillögur til þess að styrkja forsendur slíkra siglinga í febrúar. Innviðaráðuneytið vinnur nú með fjármála- og efnahagsráðuneytinu og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu að því að framkvæma tillögu starfshópsins um að kolefnisgjöld af reglubundnum strandsiglingum verði lögð af, að því er kemur fram í skriflegu svari þess við fyrirspurn Vísis. Gjöldin verði lögð af þar til komnar verði fram „raunhæfar lausnir til orkuskipta í siglingum stærri skipa“. Minna hefur þó orðið úr tillögu starfshópsins um að ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að skip í strandsiglingum yrðu utan evrópska viðskiptakerfisins með losunarheimildir (ETS). Eyjólfur ráðherra sagði í vor að hann ætlaði að beita sér fyrir því að þau gjöld yrðu „felld niður“. Þegar Eyjólfur kynnti stöðu aðgerða sem starfshópurinn lagði til fyrir samráðherrum sínum í síðustu viku var aðeins talað um að stjórnvöld könnuðu efnahagsleg áhrif kerfisins á mögulega strandflutninga. Ranglega var sagt í skýrslu starfshópsins að innanlandsflug á Íslandi væri undanþegið ETS-kerfinu. Það hefur þvert á móti fallið undir kerfið frá upphafi. Vilja strandsiglingar inn í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ETS-kerfið nær yfir losun skipa, flugvéla og iðnaðar á Íslandi en samkvæmt því þurfa fyrirtæki að kaupa losunarheimildir vegna þeirrar losunar gróðurhúsalofttegunda sem þeir valda með starfsemi sinni. Losun gróðurhúsalofttegunda er orsök þeirra loftslagsbreytinga sem nú eiga sér stað á jörðinni. Ekki er ljóst á hvaða grundvelli íslensk stjórnvöld gætu á einhvern hátt fellt niður kostnað íslenskra strandsiglingaútgerða vegna ETS-kerfisins. Ráðuneytið vísaði til leiðbeininga Eftirlitsstofnunar EFTA um ríkisaðstoð vegna loftslagsmála þegar sjóflutningar losi minna en samgöngumátar á landi þegar Vísir grennslaðist fyrir um ummæli ráðherrans í apríl. „Innviðaráðherra væntir þess að þeir möguleikar verði skoðaðir til hlítar,“ sagði í svari ráðuneytisins þá. Ráðherra vill færa vöruflutninga innanlands faf vegum og út á sjó.Vísir/Vilhelm Ekkert kemur fram í svari ráðuneytisins eftir ríkisstjórnarfundinn í síðustu viku um hvort að þessi möguleiki sé til skoðunar. Hins vegar segir þar að ráðuneytin þrjú sem vinna saman að því að fella niður kolefnisgjöldin eigi í samráði um að umræða og „mögulegar greiningar á raunhæfi og loftslagsávinningi“ strandsiglinga fari fram. Markmið slíkrar umræðu og greiningar væri að skoða hvort að efling strandsiglinga verði færð inn sem aðgerð í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Afnema vitagjald og láta hafnir liðka til fyrir strandsiglingum Af öðrum tillögum starfshópsins segist innviðaráðuneytið ætla að leggja að nýju fram frumvarp um að skip í strandsiglingum þurfi ekki að greiða svonefnt vitagjald í haust en slíkt frumvarp náði ekki fram að ganga á síðasta þingi. Einnig er til skoðunar hvort hægt sé að gera höfnum mögulegt að styðja betur við strandflutninga. Þá er Vegagerðinni falið að hraða mati á kostnaði og ábata vegna landflutninga við þjóðvegakerfið þannig að því ljúki ekki síðar en á næsta ári. Í samvinnu við Vegagerðina og Hafnasamband Íslands ætlar ráðuneytið að fylgjst með þróun vöruflutninga og gera tillögur um viðbrögð stjórnvalda eftir því sem ástæða þykir til.
Skipaflutningar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Loftslagsmál Bensín og olía Skattar, tollar og gjöld Jarðefnaeldsneyti Flokkur fólksins Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira