Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir skrifar 30. júní 2026 19:31 Mikil umræða hefur verið um læsi og menntun barna á Íslandi. Í þeirri umræðu má ekki gleyma heyrnarlausum og heyrnarskertum börnum, sem þurfa raunverulegan aðgang að tungumáli frá fyrstu árum ævinnar til að byggja upp málþroska, læsi og góðan námsárangur. Fyrir þessi börn er ekki alltaf hægt að treysta eingöngu á heyrn til að tileinka sér tungumál. Því er mikilvægt að þau búi við málumhverfi þar sem bæði íslenskt táknmál og íslenska eru efld. Rannsóknir sýna að sterkur grunnur í fyrsta máli styður við málþroska, læsi, nám og félagsþroska. Tvítyngi eykur þannig möguleika barna til virkrar þátttöku í samfélaginu. Á undanförnum árum höfum við ítrekað séð afleiðingar þess þegar börn fá ekki nægan aðgang að tungumáli á fyrstu æviárunum. Slíkt getur leitt til málsveltis sem hefur neikvæð áhrif á þroska og námsárangur. Rannsóknir sýna jafnframt að snemmbær tileinkun táknmáls styður við þróun ritmáls og annarra tungumála. Táknmál hindrar ekki máltöku talaðs máls heldur styðja málin hvort annað, einnig hjá börnum með kuðungsígræðslu. Nauðsynlegt er að tryggja að öll heyrnarlaus og heyrnarskert börn fái aðgang að íslensku táknmáli um leið og heyrnarskerðing greinist. Táknmál á að vera sjálfsagður hluti snemmtækrar íhlutunar samhliða talþjálfun og notkun heyrnartækja eða kuðungsígræðslu. Einnig þarf að efla samstarf þeirra stofnana sem sinna þessum börnum og fjölskyldum þeirra. Réttur barna til tungumáls er ekki aðeins mennta- eða heilbrigðismál heldur grundvallarmannréttindi. Öll börn eiga rétt á að þróa fyrsta mál sitt á þeim tíma sem heilinn er móttækilegastur fyrir tungumáli. Fyrir heyrnarlaus og heyrnarskert börn felur það í sér snemmbæran aðgang að bæði íslensku táknmáli og íslensku. Höfundur er heyrnarlaus frá fæðingu og er íslenskt táknmál (ÍTM) fyrsta mál hennar. Hún er tvítyngd í íslensku táknmáli og íslensku og hefur einnig góða færni í amerísku táknmáli (ASL), alþjóða táknun (International Sign) og ritaðri ensku. Höfundur er menntaður þroskaþjálfi og hefur lokið B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræðum, viðbótardiplóma í kennslufræði háskóla, M.Ed.-gráðu í kennslufræði og skólastarfi og hefur áratuga reynslu af kennslu íslensks táknmáls. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslensk tunga Táknmál Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Mikil umræða hefur verið um læsi og menntun barna á Íslandi. Í þeirri umræðu má ekki gleyma heyrnarlausum og heyrnarskertum börnum, sem þurfa raunverulegan aðgang að tungumáli frá fyrstu árum ævinnar til að byggja upp málþroska, læsi og góðan námsárangur. Fyrir þessi börn er ekki alltaf hægt að treysta eingöngu á heyrn til að tileinka sér tungumál. Því er mikilvægt að þau búi við málumhverfi þar sem bæði íslenskt táknmál og íslenska eru efld. Rannsóknir sýna að sterkur grunnur í fyrsta máli styður við málþroska, læsi, nám og félagsþroska. Tvítyngi eykur þannig möguleika barna til virkrar þátttöku í samfélaginu. Á undanförnum árum höfum við ítrekað séð afleiðingar þess þegar börn fá ekki nægan aðgang að tungumáli á fyrstu æviárunum. Slíkt getur leitt til málsveltis sem hefur neikvæð áhrif á þroska og námsárangur. Rannsóknir sýna jafnframt að snemmbær tileinkun táknmáls styður við þróun ritmáls og annarra tungumála. Táknmál hindrar ekki máltöku talaðs máls heldur styðja málin hvort annað, einnig hjá börnum með kuðungsígræðslu. Nauðsynlegt er að tryggja að öll heyrnarlaus og heyrnarskert börn fái aðgang að íslensku táknmáli um leið og heyrnarskerðing greinist. Táknmál á að vera sjálfsagður hluti snemmtækrar íhlutunar samhliða talþjálfun og notkun heyrnartækja eða kuðungsígræðslu. Einnig þarf að efla samstarf þeirra stofnana sem sinna þessum börnum og fjölskyldum þeirra. Réttur barna til tungumáls er ekki aðeins mennta- eða heilbrigðismál heldur grundvallarmannréttindi. Öll börn eiga rétt á að þróa fyrsta mál sitt á þeim tíma sem heilinn er móttækilegastur fyrir tungumáli. Fyrir heyrnarlaus og heyrnarskert börn felur það í sér snemmbæran aðgang að bæði íslensku táknmáli og íslensku. Höfundur er heyrnarlaus frá fæðingu og er íslenskt táknmál (ÍTM) fyrsta mál hennar. Hún er tvítyngd í íslensku táknmáli og íslensku og hefur einnig góða færni í amerísku táknmáli (ASL), alþjóða táknun (International Sign) og ritaðri ensku. Höfundur er menntaður þroskaþjálfi og hefur lokið B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræðum, viðbótardiplóma í kennslufræði háskóla, M.Ed.-gráðu í kennslufræði og skólastarfi og hefur áratuga reynslu af kennslu íslensks táknmáls.
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar