Agnes var meira en bara morðingi Kristján Már Unnarsson skrifar 2. júlí 2026 09:12 Dóra Sigurðardóttir, bóndi og listakona í Vatnsdalshólum. Egill Aðalsteinsson Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið að Þrístöpum í Húnaþingi þar sem síðasta aftakan á Íslandi fór fram árið 1830. Staðurinn þar sem þau Agnes og Friðrik voru hálshöggvin er núna orðinn áningarstaður ferðamanna. Aftökustaðurinn á Þrístöpum í Vatnsdalshólum.Egill Aðalsteinsson Á bænum Vatnsdalshólum skammt frá rekur Dóra Sigurðardóttir sýningarsal ásamt vinnustofu. Þangað hefur hún fengið til liðs við sig fleiri listamenn á sumrin á þemasýningar. „Þá er fullt af listamönnum sem taka fyrir efni sem ég vel. Og núna valdi ég líf og störf Agnesar Magnúsdóttur sem er frægust fyrir dauða sinn,“ segir listakonan Dóra sem jafnframt er bóndi í Vatnsdalshólum. Hún vill fjalla um aðstæður kvenna á tímum Agnesar, sem var vinnukona í vistarböndum. „Þetta var bara þrældómur, þetta voru bara þrælar. Þau voru bara föst í vistarböndum og þau gátu ekki farið, ekki flúið. Hún til dæmis flúði nokkrum sinnum til prestsins til að fá hjálp. Hann rak hana til baka.“ Illugastaðir á Vatnsnesi. Þar voru þeir Natan Ketilsson og Pétur Jónsson myrtir.Egill Aðalsteinsson En Dóra vill einnig nálgast persónuna Agnesi. „Það er búið að fjalla svo ofboðslega mikið um dauða hennar, aftöku og réttarhöldin og allt þetta. Mér finnst að það þurfi að sýna hennar mannlegu hlið. Ekki bara að hún var morðingi. Hún var hagmælt og eina lýsingin á útliti hennar; hún var ásjáleg. Hún hafði góða menntun, þetta litla sem hún fékk að læra, þá náði það vel í gegn. Og það var góð einkunn þegar hún fermdist. Þannig að þetta var kona sem vissi ýmislegt. Hún var ljóðskáld gott. En það er lítið til eftir hana vegna þess að þú geymir ekkert pappíra um morðingja. Og svo er svo gaman að geta þess að þær voru fæddar sama ár, hún og Skáld-Rósa, og þær elskuðu sama manninn,“ segir Dóra Sigurðardóttir og hlær hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Myndlistarsýningin um Agnesi verður opnuð á laugardag, 4. júlí, klukkan 13 og stendur fram til 20. september. Hún verður opin alla daga í sumar, nema á mánudögum, milli klukkan 13 og 18. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist Húnabyggð Dómsmál Húnaþing vestra Menning Tengdar fréttir Natan er fórnarlamb og gerandi en ekki til frásagnar Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld klukkan 20 leikritið Natan í samvinnu við Aldrei óstelandi. 26. október 2017 09:45 Agnes hlyti í dag fjórtán ára dóm fyrir morðið á Natan Refsidómur í hinu fræga morðmáli Natans Ketilssonar yrði mildaður til muna ef réttað væri í málinu með nútímaréttarfari. Agnes Magnúsdóttir hlyti fjórtán ára fangelsisdóm í stað dauðadóms, Friðrik Sigurðsson hlyti sjö ára fangelsisdóm og lengd fangelsisdóms Sigríðar Guðmundsdóttur væri fimm ár. 9. september 2017 19:09 Baráttukonan Agnes Hvað gerir manneskja sem getur ekki flúið kvalara sinn? Í réttarhöldum sem fara fram í dag á Hvammstanga verður réttað á ný í máli Agnesar Magnúsdóttur og Friðriks Sigurðssonar sem voru hálshöggvin árið 1830. Langvarandi ofbeldi var undirrótin, segir verjandi Agnesar. 9. september 2017 12:00 „Bændur stundu, stór er syndin…“ Vönduð söguleg skáldsaga um eitt frægasta morðmál Íslandssögunnar, lýsing aðalpersónunnar ber söguna uppi. 4. október 2014 10:00 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira
Natan er fórnarlamb og gerandi en ekki til frásagnar Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld klukkan 20 leikritið Natan í samvinnu við Aldrei óstelandi. 26. október 2017 09:45
Agnes hlyti í dag fjórtán ára dóm fyrir morðið á Natan Refsidómur í hinu fræga morðmáli Natans Ketilssonar yrði mildaður til muna ef réttað væri í málinu með nútímaréttarfari. Agnes Magnúsdóttir hlyti fjórtán ára fangelsisdóm í stað dauðadóms, Friðrik Sigurðsson hlyti sjö ára fangelsisdóm og lengd fangelsisdóms Sigríðar Guðmundsdóttur væri fimm ár. 9. september 2017 19:09
Baráttukonan Agnes Hvað gerir manneskja sem getur ekki flúið kvalara sinn? Í réttarhöldum sem fara fram í dag á Hvammstanga verður réttað á ný í máli Agnesar Magnúsdóttur og Friðriks Sigurðssonar sem voru hálshöggvin árið 1830. Langvarandi ofbeldi var undirrótin, segir verjandi Agnesar. 9. september 2017 12:00
„Bændur stundu, stór er syndin…“ Vönduð söguleg skáldsaga um eitt frægasta morðmál Íslandssögunnar, lýsing aðalpersónunnar ber söguna uppi. 4. október 2014 10:00