Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar 2. júlí 2026 14:31 Það er ansi margt sem er betra við það að búa með fjölskyldunni minni á Íslandi heldur en í Stokkhólmi. Einn af óvæntustu hlutunum – og eitthvað sem við pældum aldrei í þegar við bjuggum úti – var hversu stórkostlega skemmtileg krakkafótboltamót á íslenskum sumrum eru. Þessi mót hafa furðu slæmt orð á sér í hugum margra sem hafa ekki upplifað þau. Fólk hefur heyrt einhverjar misjafnar sögur um æsta foreldra og að þessi mót stjórni sumarplönum hjá heilu fjölskyldunum. En málið er einfaldlega að þau eru ótrúlega skemmtileg og fólk, sem á ekki krakka í fótbolta, eru að missa af miklu. Í raun svo miklu að ég mæli með því við ansi marga að setja krakkana í fótbolta í einhver ár bara til þess að þau upplifi þennan mikla og góða félagsskap. Vegna þess að þessi mót eru frábær skemmtun þar sem maður kynnist krökkunum í hverfinu og öllum foreldrunum líka. Og mótin eru alveg jafn skemmtileg hvort sem að barnið þitt er í A, C eða F liði. Ég hef upplifað sigur á norsku deildinni hjá F liðum á N1 mótinu og ég fagnaði þeim sigri jafn innilega og ég hef fagnað nokkrum fótboltasigri á ævinni. Íslensk samvinna Þessi fótboltamót eru líka einhvers konar hápunktur á íslenskri samvinnu. Síðan að við fluttum til Íslands fyrir fjórum árum höfum við á hverju sumri flakkað um landið með krakkana okkar spilandi fyrir Þrótt. Við höfum farið á N1 mótið á Akureyri, Símamótið í Kópavogi, Króksmótið, Jakó mótið á Selfossi og nú síðast Pæjumótið í Vestmannaeyjum. Eftir að barnið er skráð á þessi mót er maður allt í einu kominn í miðja Google Sheet veislu þar sem allir foreldrar finna sér hlutverk. Þessi pabbinn fer í nestisnefnd, þessi mamma gistir með liðinu á föstudagskvöld og hin mamman er svo liðsstjóri á meðan að liðið fer í sund eða sér um upphitun fyrir næsta leik. Allt gengur þetta upp. Í Þrótti er Google Sheet skjal endurnýjað á hverju ári og aftast í skjalinu eru tillögur umhvað má bæta á næsta ári. Á Pæjumótinu hafði einhver skrifað að það vantaði Þróttarafána til að setja í mini-rúturnar sem að liðið notar til að keyra stelpurnar úr leikjum og í mat á Pæjumótinu. Fyrir tveimur árum ákvað einhver pabbi eða mamma að það væri sniðugt að leigja svoleiðis rútur til að einfalda lífið fyrir þessi 5 fótboltalið sem Þróttur sendir. Og þá er það gert ár eftir ár. Í ár skrifaði einn pabbinn ChatGPT vefsíðu þar sem listað var upp hvaða liði þyrfti að skutla hvert og á hvaða tíma. Þegar ég var skráður á eina bílstjóravakt var símanúmerið mitt opið fyrir öllum öðrum foreldrum og í einhverja 3 tíma á fimmtudagskvöldinu keyrði ég um Vestmannaeyjabæ pikkandi upp hressar fótboltastelpur í sund og skutlaði þeim í mat og þaðan uppí skóla, allt eftir fyrirmælum frá foreldrum sem voru liðsstjórar sinna liða. Annað foreldri hafði í vetur bókað skátaheimilið þar sem foreldrar gátu gist og einhver hafði passað uppá það að Þróttarafáninn blakti þar við hún. Í Skátaheimilinu sáu nokkrir foreldrar um að útbúa nesti fyrir krakkana sem að aðrir foreldrar höfðu fengið gefins frá fyrirtækjum heima í Reykjavík. Á hverjum morgni mættu nokkrir foreldrar í eldhúsið í Skátaheimilinu og settu saman nestistöskur fyrir stelpurnar. Einn pabbi kom svo og sótti nestið og kom til þess sem var liðsstjóri fyrir stelpurnar og stjórnaði þeim í upphitun í nýju peysunum, sem voru keyptar með því að selja fyrirtækjum í Laugardalnum auglýsingu, sem einni mömmunni datt í hug sirka viku fyrir mót. Eftir að stelpurnar höfðu borðað kvöldmat hvert kvöld þá mættu tveir foreldrar í skátaheimlið og smurðu þar samlokur, sem að voru svo sendar með bíl uppí skóla þar sem mömmurnar, sem gistu með liðinu, grilluðu fyrir stelpurnar svo þær færu ekki svangar að sofa. Stelpurnar voru margar með eyrnatappa þar sem ein mamman hafði munað eftir því að láta einn pabbann (mig) kaupa fullt af eyrnatöppum svo að stelpurnar sem áttu leik snemma næsta morgun myndu ekki vekja þær sem áttu leiki aðeins seinna. Stelpurnar gleymdu hlutum í skólanum og foreldrar hjálpuðust að við að koma hlutum á rétta staði með því að senda hvor öðrum skilaboð á Abler. Mig vantaði far í bæinn frá Landeyjahöfn og ég auglýsti það á Abler og nokkrum mínútum seinna kom ein mamman uppað mér á hliðarlínunni og bauð mér og dóttur minni far. Allt þetta gengur nokkurn veginn eins og smurð vél. Ég var einn á mótinu með stelpunni minni og tók því nokkuð margar vaktir. Aðrir voru með alla fjölskylduna og gátu því kannski ekki tekið eins margar. Á þessu móti voru 65 liðsstjóravaktir hjá Þrótti, sem þurfti að manna auk fólks í nestisnefnd, bílstjóra, og passa að einhver tæki með hátalara og myndi útbúa playlista fyrir hvert lið. Allt gekk þetta bara. Traust Allt byggir þetta líka á ótrúlegu trausti sem við Íslendingar höfum til hvors annars. Við treystum hinum foreldrunum til að keyra krakkana okkar um bæinn, til að vekja þau á morgnana eða koma þeim í rúmið á kvöldin. Það eru þvílík lífsgæði að slíkt traust ríki. Svo er auðvitað allt hitt tengt liðunum sem halda mótin. Ég hef upplifað að vera hinum megin við borðið á Rey Cup mótum Þróttar þar sem að foreldrar mæta á sjoppuvaktir klukkan átta á laugardagsmorgni og aðrir mæta til að dæma leiki eða vera vallastjórar. Ég hef mætt uppá Þróttarvöll til að dæma á sunnudagsmorgnum ekki vegna þess að ég ætlist til einhvers í staðinn heldur vegna þess að ég elska félagið, hverfið mitt og vil hjálpa til. Auk þess sem að öll þessi störf eru oftast ótrúlega skemmtileg. Þannig gengur þetta upp í okkar samfélagi, ár eftir ár. Ég er stoltur af því að vera þátttakandi í þessu magnaða íslenska hópverkefni. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fótbolti Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar