Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Áróra L Davíðsdóttir skrifar 2. júlí 2026 13:54 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Kurt Jager, framkvæmdastjóra EFTA, Sabine Monauni, utanríkisráðherra Lichtenstein, Nguyen Sinh Nhat Tan, iðnaðarráðherra Víetnam, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, og Guy Parmelin, forseta Sviss. Stjórnarráðið Viðræðum EFTA ríkjanna um gerð fríverslunarsamnings við Víetnam er lokið. Samkomulag náðist milli ríkjanna á nýafstöðnum ráðherrafundi EFTA sem fór fram þann 22. júní síðastliðinn í Reykjavík.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Á fundinum hafi ráðherrar EFTA-ríkjanna, þ.e. Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss, og iðnaðarráðherra Víetnam sammælst um lok samningaviðræðnanna. Samkomulagið hefur nú verið staðfest af öllum fimm ríkjunum. Samninganefndir ríkjanna hafi fundað vikulangt í Reykjavík í aðdraganda fundarins og að niðurstaða þeirrar vinnu hafi lagt grunninn að samkomulaginu sem ráðherrar ríkjanna fimm samþykktu. „Samkomulag við Víetnam um fríverslunarsamning er stór áfangi fyrir EFTA, en samningurinn kemur til með að styrkja viðskiptatengsl EFTA-ríkjanna við eitt mest vaxandi hagkerfi Asíu. Þá er auðvitað sérstaklega ánægulegt að síðasta samningalotan hafi farið fram á Íslandi og að lokahnúturinn hafi verið bundinn á ráðherrafundi EFTA í Reykjavík,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, í tilkynningunni. „Um er að ræða umfangsmikinn og nútímalegan fríverslunarsamning sem tekur meðal annars til vöru- og þjónustuviðskipta, fjárfestinga, opinberra innkaupa, hugverkaréttinda auk viðskipta og sjálfbærrar þróunar. Samningurinn kemur til með að bæta markaðsaðgang íslenskra fyrirtækja í Víetnam og skapa aukin tækifæri til vöru- og þjónustuviðskipta sem og fjárfestinga.“
Utanríkismál Víetnam EFTA Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Sjá meira