„Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Ester Ósk Árnadóttir skrifar 2. júlí 2026 20:00 Sigurður Heiðar Höskuldsson á hliðarlínunni í dag. Guðmundur/Vísir „Mér fannst við bara flottir, við gáfum allt í þetta. Við erum að spila á móti liði sem að hefðu geta lent 7-0 undir en hefðu samt alltaf komið aftur á okkur og haft trú á því að þeir væru að fara að vinna leikinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir 3-3 jafntefli á móti KR á Akureyri í dag. „
Það er erfitt að spila á móti þeim og sérstaklega þegar öll stærstu atvik leiksins hafa falið þeirra megin. Mér líður svona mest eins og að það hafi ráðið úrslitum að dómararnir eyðilögðu þetta fyrir okkur.“ Spurður út í hvaða atvik hann væri að vísa í sagðist hann ekki vilja þylja það upp. „Ég nenni ekki að þylja þau upp, það eru bara öll stóru atriðin.“ Sigurði leið þó ekki of vel þótt staðan væri orðin 3-0 eftir 13 mínútur. „Jú komnir í 3-0 en vitandi það að þeir kæmu alltaf á okkur þannig að þú ert ekkert rólegri þó staðan sé orðin 3-0. Þannig að í rauninni leið mér bara svipað í 3-0 eins og í 0-0.“ Seinni hálfleikur fór að mestu fram á vallarhelming Þórs. „Það vissu það allir sem voru að horfa á þennan leik og allir sem tóku þátt í honum að þetta myndi vera svona þannig að við vorum bara undirbúnir fyrir það að þetta myndi fara í það. Þetta er bara ógeðslega erfitt, það er mjög erfitt að stíga á þá og það er ótrúlega erfitt að ætla setja pressu á manninn með boltann því þeir eru hrikalega góðir. Við gerum bara vel að halda þeim frá okkur á stórum kafla í leiknum. Það voru margir inn á sem hafa ekki verið að spila nægjanlega mikið og ekki alveg í sínu allra besta formi. Þannig þetta var alltaf að fara að verða brekka, það er stutt frá síðasta leik. Ég er bara aðallega stoltur af leikmönnunum hvað við gáfum í þetta.“ Þór mætir Fram næst á útivelli sunnudaginn 12. júlí og Sigurður bjartsýn á framhaldið. „Vonandi náum við að tjasla okkur betur saman og vera með meira batterí á tanknum en við vorum með í dag þannig að við getum þrýst vel á Framarana. Ég er spenntur fyrir framhaldinu við þurfum að fara á ná í fleiri stig og ef að baráttan og andinn er eins og var í dag að þá hljótum við að fara á fá einhverja sigra.“
Þór Akureyri KR Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ Sjá meira