Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júlí 2026 14:43 Selenskí greindi frá árásinni með færslu á X. EPA Úkraínumenn gerðu umfangsmiklar drónaárásir á olíuinnviði Rússa í Sankti Pétursborg í nótt. Úkraínuforseti segir olíustöðina sem um ræðir vera meðal lykilinnviða Rússa.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti greindi frá árásinni í færslu á samfélagsmiðlinum X. Þar lýsti hann olíustöðinni sem mikilvægum „innviðum sem afla tekna fyrir stríðsrekstur Rússlands“. Þá hafi Úkraínumenn einnig gert árás á stóra rússneska flotastöð á svæðinu. Hann benti á að skotmörkin sem ráðist var á séu í 850 kílómetra fjarlægð frá Úkraínu. Á myndbandi sem Selenskí birti má sjá dróna fljúga í átt að skotmarki. Her Úkraínu segir olíustöðina eina þá stærstu í landinu og gæti hún framleitt 12,5 milljónir tonna af olíuafurðum á ári. Last night, our Ukrainian long-range sanctions against Russia over this war reached targets near St. Petersburg. Ukraine's Defense Forces struck port oil infrastructure that generates revenue for Russia's war, and there were also successful strikes on Kronstadt – an important… pic.twitter.com/bMHY3cL3rM— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) July 4, 2026 Aleksandr Beglov, ríkisstjóri Sankti Pétursborgar, sagði samkvæmt BBC að borgin hefði orðið fyrir umfangsmikilli drónaárás. Engan sakaði í árásinni. Hann bætti við að Rússar hefðu náð að skjóta niður 72 dróna yfir borginni og Leningrad-héraði. Íbúar á svæðinu voru hvattir til þess að halda sig innandyra og varað var við því að símasamband gæti raksast. Árásir Rússa á Úkraínu halda áfram að aukast en 39 létust í loftárás Rússa á Kænugarð aðfaranótt fimmtudags.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Fleiri fréttir Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Sjá meira