Sautján ára hetja Breiðabliks: Kemur þegar maður trúir á Guð og sig sjálfan Gunnar Egill Daníelsson skrifar 5. júlí 2026 10:29 Þór Andersen Willumsson skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni í gær Breiðablik/Instagram Þór Andersen Willumsson reyndist hetja Breiðabliks þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á ÍA í þrettándu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í gær.
Þór er einungis 17 ára gamall, yngri bróðir Willums Þórs og Brynjólfs atvinnu- og landsliðsmanna í fótbolta, og lék í dag aðeins annan leik sinn í Bestu deildinni á tímabilinu og á ferlinum. Hann skoraði sigurmarkið með góðum skalla á 80. mínútu eftir að hafa komið inn á einungis þremur mínútum fyrr. „Líðanin er geðveik. Mér hefur aldrei liðið svona vel á ævinni,“ sagði Þór í samtali við Sýn Sport eftir leikinn. Hann fagnaði með því að signa sig og benda til himins. „Það er bara að trúa á Guð og trúa á sig sjálfan, þá kemur þetta,“ sagði Þór um fagnið. Sagði mér að skora mark Fannstu á þér að þú myndir skora í dag? „Já, ég er búinn að finna það á mér lengi að í næsta leik kæmi fyrsta markið,“ sagði hann hreinskilinn og er spenntur fyrir framhaldinu. „Það er mjög gott. Það er góður andi í klefanum og ég er spenntur fyrir komandi tímum.“ Spurður að því hver skilaboð Ólafs Inga Skúlasonar þjálfara Breiðabliks hafi verið áður en Þór kom inn á sagði hann að endingu: „Hann sagði bara „skoraðu mark“ og ég gerði það. Þetta er geðveikt.“
Besta deild karla Íslenski boltinn Breiðablik Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Sjá meira