Körfubolti

16 ára Berg­lind mögnuð er Ís­land náði sögu­legum árangri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stelpurnar okkar í U20 ára landsliðinu gátu fagnað vel eftir góðan sigur á Ítalíu.
Stelpurnar okkar í U20 ára landsliðinu gátu fagnað vel eftir góðan sigur á Ítalíu. Mynd/FIBA

Hin 16 ára gamla Berglind Katla Hlynsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, fór fyrir U20 ára landsliði Íslands er það komst í 16-liða úrslit á EuroBasket U20 með sigri á Ítalíu.

Berglind er því að spila fjögur ár upp fyrir sig á mótinu en það virðist lítið flækjast fyrir henni að taka yfir leiki, líkt og hún gerði í 86-79 sigri Íslands á Ítölum.

Berglind skoraði 32 stig og gaf sjö stoðsendingar á liðsfélaga sína í sigrinum og var með framlagspunkta upp á 38 talsins. Næst stigahæst í íslenska liðinu var Sara Logadóttir með 18 stig.

Berglind er dóttir Hlyns Bæringssonar, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmanns.

Ísland hafði unnið Serba í fyrsta leik en tapað svo stórt fyrir Póllandi. Annar sigurinn í dag á Ítölum tryggir Ísland áfram í 16-liða úrslit í A-deild keppninnar en aldrei áður hefur Íslandi tekist að vinna tvo leiki í A-deild mótsins.

Fram undan eru leikir í 16-liða úrslitum en þar mætir Ísland liði Tyrkja á morgun klukkan 12:30 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×