Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júlí 2026 10:04 Charles De Ketelaere skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Belgía vann sannfærandi sigur á heimaliði Bandaríkjanna í sextán liða úrslitum HM. getty/Luke Hales Fyrir leik Bandaríkjanna og Belgíu í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta var athyglin mikil á manninum sem Donald Trump og Gianni Infantino forðuðu frá leikbanni, Folarin Balogun. Eftir leikinn stal hins vegar Belginn Charles De Ketelaere fyrirsögnunum.
Fyrir leik Bandaríkjanna og Belgíu í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta var athyglin mikil á manninum sem Donald Trump og Gianni Infantino forðuðu frá leikbanni, Folarin Balogun. Eftir leikinn stal hins vegar Belginn Charles De Ketelaere fyrirsögnunum. Mikil undiralda var fyrir leikinn í Seattle í nótt eftir að Balogun var gert kleift að spila þrátt fyrir að hann hefði að öllu eðlilegu átt að vera í leikbanni. Við það gat Trump ekki unað og hringdi í góðvin sinn, FIFA-forsetann Infantino, og í kjölfarið var Balogun leystur úr prísundinni. Þegar á hólminn var komið hafði hann lítil áhrif á gang mála í leiknum, öfugt við fremsta mann belgíska liðsins. De Ketelaere er ekki hefðbundinn framherji, hvað þá mikill markaskorari. Á eina tímabili sínu hjá AC Milan mistókst honum til að mynda að skora í fjörutíu leikjum og á síðasta tímabili gerði hann bara fimm mörk í 42 leikjum fyrir Atalanta. Þrátt fyrir það hefur Rudi Garcia, þjálfari Belgíu, veðjað á De Ketelaere sem fremsta mann belgíska liðsins í fimm af sex leikjum þess á HM. Hann hafði ekki skorað á mótinu þegar kom að leiknum gegn Bandaríkjunum en það breyttist í nótt. Á 9. mínútu potaði hann boltanum yfir línuna eftir fyrirgjöf frá orkuboltanum Nicolas Riskin. Bandaríkin jöfnuðu með marki beint úr aukaspyrnu á 31. mínútu en nánast í næstu sókn kom De Ketelaere Belgíu aftur yfir. Aftur kom fyrirgjöf frá vinstri, nú frá Leandro Trossard, og De Ketelaere hafði betur gegn fyrirliða bandaríska liðsins, Tim Ream, í loftinu og skallaði boltann í netið. De Ketelaere var ekki hættur því á 57. mínútu pressaði hann Matt Freese, markvörð Bandaríkjanna. Boltinn féll fyrir fætur Hans Vanaken sem skilaði honum rakleitt í markið. Tíu mínútum síðar fór De Ketelaere af velli og í hans stað kom Romelu Lukaku, langmarkahæsti leikmaður í sögu belgíska landsliðsins, og hann kórónaði góða frammistöðu Belganna með marki á þriðju mínútu í uppbótartíma. Þetta var einn af stóru dögunum á ferli hins 25 ára De Ketelaeres sem hefur alið manninn á Ítalíu síðan 2022. Hann er fæddur í Brussel og gekk í raðir Club Brugge aðeins sjö ára að aldri. Meðfram því að æfa og spila með yngri liðum Club Brugge var De Ketelaere boltastrákur á leikjum aðalliðs félagsins. Hann var átján ára þegar hann byrjaði sjálfur að spila fyrir aðallið Club Brugge og frammistaða hans vakti athygli stórliða. Svo fór að Milan festi kaup á De Ketelaere en hann olli miklum vonbrigðum hjá þeim rauðu og svörtu sem losuðu sig við hann til Atalanta. Þar hefur betur gengið hjá hinum hægláta De Ketelaere sem er lítið fyrir sviðsljósið og kann illa við alla athyglina sem fylgir því að vera fótboltamaður í fremstu röð. Fyrir nokkrum árum var því spáð að De Ketelaere yrði arftaki Kevins De Bruyne í belgíska landsliðinu. Og það var kannski viðeigandi að De Bruyne skyldi leggja fyrsta landsliðsmark De Ketelaeres upp, í 2-1 tapi fyrir Ítalíu. Eftir leikinn í Seattle eru landsliðsmörkin orðin átta og De Ketelaere fær tækifæri til að bæta við þá tölu þegar Belgar mæta Spánverjum í átta liða úrslitum HM. Það verður þó ærið verkefni því Evrópumeistararnir hafa ekki enn fengið á sig mark á HM. En þrátt fyrir ýmsa vankanta er belgíska liðið komið í átta liða úrslit á HM og vill eflaust endurtaka leikinn frá því í Mexíkó fyrir fjörutíu árum og tryggja sér sæti í undanúrslitum með sigri á Spáni.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sveindís missti af prinsessuleiknum Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Sjá meira