Hrafnhildur til starfa hjá Sundsambandi Íslands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2026 19:00 Hrafnhildur Lúthersdóttir og Steindór Gunnarsson koma bæði inn í ábyrgðarstöðu í afreksstarfi Sundsambands Íslands. SSÍ Ein besta sundkona Íslands fyrr og síðar ætlar að aðstoða Sundsamband Íslands við að móta yngstu afrekshópa sambandsins en Hrafnhildur Lúthersdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá SSÍ.
Sundsamband Íslands sagði frá breytingum hjá sér á heimasíðu sambandsins þar sem kemur fram að í kjölfar þess að Eyleifur Jóhannesson sagði starfi sínu lausu sem afreksstjóri Sundsambands Íslands hafi farið fram umfangsmikil vinna við að móta nýtt skipulag yfir afreksstarf sambandsins. „Við erum Eyleifi afar þakklát fyrir það góða starf sem hann hefur unnið fyrir sundhreyfinguna undanfarin sex ár. Undir hans stjórn hefur afreksstarfið tekið stór skref fram á við og því var okkur mjög mikilvægt að tryggja að sú uppbygging héldi áfram,“ segir Björn Sigurðsson, formaður SSÍ. Í stað þess að fela einum einstaklingi alla ábyrgð afreksstarfsins var ákveðið að skipta verkefnum og ábyrgð á milli þriggja reynslumikilla einstaklinga sem saman mynda sterkt teymi með skýra verkaskiptingu. Eyleifur Jóhannesson mun áfram leiða efsta þrep afreksstarfs SSÍ og sinna undirbúningi og eftirfylgni afrekssundfólks Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Steindór Gunnarsson tekur við ábyrgð á miðþrepi afreksstarfsins og mun leiða og halda utan um Evrópumeistaramót unglinga (EMU), Norðurlandameistaramótið (NM) og Smáþjóðaleikana, auk þess að vinna með sundfólki og þjálfurum. Hrafnhildur Lúthersdóttir hefur jafnframt verið ráðin til starfa hjá SSÍ. Hún mun leiða framtíðarhóp og yngstu afrekshópa sambandsins, þar á meðal verkefni tengd Norðurlandamóti æskunnar (NÆM). Auk þess mun hún starfa á skrifstofu SSÍ og sinna miðlun og samskiptum. „Við erum sérstaklega ánægð með að Eyleifur verði áfram hluti af afreksteyminu. Um leið er það mikill styrkur að fá Steindór og Hrafnhildi til liðs við okkur. Saman mynda þau öflugt teymi sem mun byggja áfram á þeim góða grunni sem hefur verið lagður og efla afreksstarf SSÍ enn frekar,“ segir Björn. Með þessari nýju skipan verður afreksstarf SSÍ byggt upp í þremur skýrum þróunarþrepum sem vinna náið saman. Aftur á móti mun áframhaldandi vinna að mótun afreksstarfs til framtíðar halda áfram og stefnt er að því að kynna nýja afreksstefnu á næsta Sundþingi, sem mun tryggja áframhaldandi uppbyggingu sundhreyfingarinnar. „Við horfum björtum augum til framtíðar. Með þessari skipan teljum við okkur vera í sterkri stöðu til að halda áfram þeirri vegferð sem hafin er og skapa íslensku sundfólki enn betri tækifæri til árangurs á alþjóðavettvangi, „segir Björn Sigurðsson að lokum.
Sund Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fór grátandi af velli Sport Fleiri fréttir Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Sjá meira