Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Jón Þór Stefánsson skrifar 10. júlí 2026 17:38 Ann Widdemcombe hafði setið á breska þinginu í 23 ár fyrir Íhaldsflokkinn og gegnt embætti innanríkis- og atvinnumálaráðherra Getty Lögreglan í Bretlandi hefur handtekið karlmann á þrítugsaldri í bænum Newton Abbot í Devonskíri, sem grunaður er í tengslum við morðrannsókn á Ann Widdecombe, breskri stjórnmálakonu.
Widdemcombe fannst látin á heimili sínu í Dartmoor, sem er líka í Devonskíri, í gærmorgun. Hún var 78 ára gömul og hafði setið á breska þinginu í 23 ár fyrir Íhaldsflokkinn og gegnt embætti innanríkis- og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Johns Major á árunum frá 1994 til 1997. Á síðari árum færði hún sig um set og starfaði fyrir Umbótaflokkinn, og barðist fyrir því að Bretland færi úr Evrópusambandinu. Maðurinn sem hefur verið handtekinn er 26 ára gamall. Hann er sagður vera hvítur og af breskum uppruna. Málið er ekki rannsakað sem hryðjuverk, samkvæmt lögreglunni í Bretlandi, og að svo stöddu mun ekkert benda til þess að manndrápið hafi verið framið í pólitískum tilgangi. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði við fjölmiðla áður en greint var frá handtökunni að nú væri mikilvægt fyrir lögregluna að bera kennsl á þann hættulega einstakling sem bæri ábyrgð á andlátinu. Um væri að ræða hræðilegar fréttir og að hugur hans væri hjá fjölskyldu Widdemcombe á þessum erfiðu tímum.
Bretland Erlend sakamál England Morðið á Ann Widdecombe Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira