Ted Lasso-leikari spilaði sinn fyrsta leik í bandarísku B-deildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. júlí 2026 10:02 Cristo Fernández fékk annað tækifæri til að láta drauminn um að verða fótboltamaður verða að veruleika. getty/Katelyn Mulcahy Cristo Fernández, sem er hvað þekktastur fyrir að leika í sjónvarpsþáttunum Ted Lasso, þreytti frumraun sína með bandaríska B-deildarliðinu í fótbolta, El Paso Locomotive, um helgina.
Í þáttunum um þjálfarann Ted Lasso fer Fernández með hlutverk fótboltamannsins Dani Rojas. Hinn mexíkóski Fernández er ekki bara leikari sem leikur fótboltamann heldur er hann vel liðtækur leikmaður sjálfur. Hann var um tíma á mála hjá Estudiantes Tecos í Mexíkó á sínum yngri árum en hnémeiðsli bundu endi á feril hans. Eftir að hafa notið velgengni sem leikari hefur Fernández nú fengið annað og óvænt tækifæri sem fótboltamaður. Hann reyndi fyrir sér hjá varaliði Chicago Fire og svo El Paso Locomotive sem leikur í bandarísku B-deildinni. Forráðamenn El Paso Locomotive hrifust af því sem þeir sáu og sömdu við Fernández. Og á laugardaginn kom hann inn á sem varamaður á 79. mínútu gegn New Mexico United sem El Paso Locomotive vann, 2-0. Auk Ted Lasso hefur hinn 35 ára Fernández meðal annars leikið í kvikmyndunum Spider-Man: No Way Home og Transformers: Rise of the Beasts.
Bandaríski fótboltinn Bíó og sjónvarp Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sjá meira