Golf

„Ég sef í bílnum ef ég þarf“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joe Dean stillir sér upp fyrir myndatöku með pinnfána eftir að hafa sigrað í úrtökumóti fyrir 154. Opna breska meistaramótið.
Joe Dean stillir sér upp fyrir myndatöku með pinnfána eftir að hafa sigrað í úrtökumóti fyrir 154. Opna breska meistaramótið. Getty/Oisin Keniry

Joe Dean var síðasti kylfingurinn til að tryggja sér þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu í golfi, The Open, sem fer af stað á fimmtudaginn en það er eitt stórt vandamál. Hann vantar gistingu.

Þessi kylfingur frá Sheffield lék á tveimur höggum undir pari, eða 68 höggum, á mánudag og sigraði með einu höggi í „Síðasta tækifæris“-úrtökumótinu þar sem tólf keppendur börðust um síðasta sætið á 154. Opna meistaramótinu, elsta risamóti golfsins.

Fyrir Dean er það að komast inn á Opna mótið verðlaun sem hann mun meta mikils en þessi góði og greinilega óvænti árangur sendir hann nú í húsnæðisleit.

„Við vorum heppnir að fá hótelherbergi í nótt en það er allt uppbókað annars staðar,“ sagði Joe Dean við breska ríkisútvarpið og grínaðist svo: 

„Miðað við veðrið gæti ég sennilega tjaldað við hliðina á púttflötinni,“ sagði Dean.

„Kannski finnum við húsbílastæði eins og í Troon árið 2024, en ég sef í bílnum ef ég þarf,“ sagði Dean.

Dean er númer 268 á heimslistanum.

„Ég mun grípa öll tækifæri til að komast aftur á Opna breska,“ sagði Dean. „Ég virðist spila betur á eins dags mótum. Ég veit ekki alveg af hverju, það er hugarfarið að reyna að halda sömu spilamennsku á öllum hringjum,“ sagði Dean.

Kærasta Deans til langs tíma, Emily, bar kylfupokann hans í undankeppninni á mánudaginn. Þau gifta sig 21. júlí.

Þegar Dean var spurður hvers vegna þau hefðu valið þessa dagsetningu sagði hann í gríni: „Það var ódýrara,“ sagði Dean. Hann starfaði sem sendill í Covid-19-faraldrinum en er núna með fast sæti á DP World-mótaröðinni.

Opna breska meistaramótið í golfi verður í beinni útsendingu á Sýn Sport frá morgni fimmtudagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×