„Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ Valur Páll Eiríksson skrifar 16. júlí 2026 09:32 Þorsteinn Hallgrímsson mun meðal annarra lýsa Opna mótinu á Sýn um helgina. Vísir/Sigurjón Mikil spenna er meðal golfáhugamanna fyrir Opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer fram í 154. sinn um helgina og hefst raunar snemma í fyrramálið. Margra augu eru á Rory McIlroy, að venju.
Opna mótið í golfi er hafið. Bein útsending stendur yfir frá klukkan 5:30 til 19:40 á Sýn Sport í dag og á morgun. Opna mótið er elsta risamót heims, enda farið árlega fram, með örfáum undantekningum frá árinu 1860. Mótið er iðulega spilað á erfiðum völlum á Bretlandseyjum og veðrið á til að spila stóra rullu, en ekki er víst að svo verði í ár. „Aðstæður líta eiginlega of vel út fyrir okkur. Spáin er góð, það spáir um 20 gráðum og fjórum til fimm metrum á sekúndu. Það sem kemur á móti er að það er alltaf spilað á strandarvöllum,“ segir fyrrverandi Íslandsmeistarinn Þorsteinn Hallgrímsson í Sportpakkanum á Sýn. „Völlurinn, Royal Birkdale-völlurinn, sem er rétt norður af Liverpool hefur þornað svolítið mikið upp. Leikmenn hafa talað um að hann breytist og erfiðleikastuðullinn verði þannig að það er erfiðara að stöðva boltann á flötunum og hitta brautir og annað.“ Er það ávallt Rory McIlroy sem er mest rætt um fyrir svona mót? „Já, Rory McIlroy og Scottie Scheffler. En núna er mikið talað um Tommy Fleetwood. Hann býr þarna á svæðinu, er heimamaður. Það er mikill spenningur fyrir því,“ segir Þorsteinn. Viðtalið var tekið upp í gær, fyrir leik Englands við Argentínu, en þá lifði enn von Englendinga um heimsmeistaratitil í fótbolta, líkt og fyrir hönd Fleetwood. Tommy Fleetwood er heimamaður sem býr í nánd við Royal Birkdale-völlinn og gæti látið til sín taka.Kevin C. Cox/Getty Images „Englendingarnir eins og við vitum, vonast eftir sigri á HM, þeir eru nú ekki komnir í úrslitaleikinn, á sunnudag og líka að Englendingur sigri. Það hefur ekki Englendingur sigrað á Opna mótinu síðan 1992, þegar leikið er á Englandi.“ Veðurspáin slík að Íslendingar liggi við skjáinn Þorsteinn segir ekki hættu á því að Opna mótið falli í skuggann á HM-fári Englendinga sem höfðu vonast eftir sæti í úrslitaleik HM á sunnudag. Mótinu ljúki fyrir úrslitaleikinn milli Argentínu og Spánar á sunnudagskvöldið. „Er það ekki fullkominn dagur. Golf og fótbolti.“ Þorsteinn mun vera hluti af lýsendateymi Sýnar af mótinu sem hófst snemma, klukkan hálf sex í morgun og aftur í fyrramálið. Golfáhugamenn eru því hvattir til að fara snemma að sofa. „Já, ég hvet til þess. Og veðurspáin hérna sunnanlands bendir til þess að það verði mjög margir sem fylgjast með golfinu um helgina.“ Bein útsending frá Opna mótinu er hafin á Sýn Sport og mun standa yfir í allan dag, til klukkan 19:40 í kvöld. Einnig er mótið í beinni á morgun, frá klukkan 5:30 til 19:40 áður en skorið verður niður fyrir seinni tvo hringina um helgina.
Opna breska Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Fleiri fréttir „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Víkingaróður Norðmanna kominn inn í golfið líka Sæti á risamóti í boði hjá Haraldi og Gunnlaugi Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Haraldur Franklín nálgast Opna breska Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Bauluðu á verðandi US Open meistara Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open Guðrún Brá og Birgir Björn Íslandsmeistarar í holukeppni Sigurinn blasir við Clark en Scheffler lætur sig dreyma Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Sjá meira