Innlent

Tengivagn valt á Vestur­lands­vegi

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Bíllinn var staddur skammt norðan við Hvalfjarðargöngin.
Bíllinn var staddur skammt norðan við Hvalfjarðargöngin. Innsent

Lögregla var kölluð til á fjórða tímanum vegna umferðaróhapps á Vesturlandsvegi þar sem flutningabíl með tengivagn í eftirdragi hafði misst tengivagninn út af svo hann valt.

Atvikið átti sér stað í norðanverðum Hvalfirði, ekki löngu eftir að komið er úr Hvalfjarðargöngunum á norðurleið. Afar vindasamt hefur verið á landinu norðvestanverðu síðustu daga.

Á myndbandi má sjá að flutningabíllinn er á vegum Íslenska Gámafélagsins og var að flytja einhvers konar lífrænt efni.

Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, staðfestir að engin slys hafi orðið á fólki. Útlit er fyrir að kantur vegarins hafi gefið sig með þeim afleiðingum að tengivagninn valt, samkvæmt fyrstu athugun lögreglu. 

Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Lögreglunnar á Vesturlandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×