Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar 16. júlí 2026 07:30 Mikill meirihluti Íslendinga hefur orðið fyrir svikatilraun á neti eða í síma á síðustu árum. Mun færri hafa tapað fjármunum í hendur svikahrappa, en vandinn er engu að síður viðvarandi. Nú þegar sumarfrí standa sem hæst er ekki síður mikilvægt að vera á varðbergi, þar sem svikahrappar tvíeflast þegar fríin ganga í garð. Rúmlega átta prósent hafa tapað fjármunum á síðustu árum Nýleg könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu sýnir að langstærstur hluti Íslendinga er vel á verði þegar kemur að þessum málum. Spurt var hvort fólk hefði lent í svikatilraun á neti eða í síma á síðustu þremur árum. Tveir þriðju, eða 66,7 prósent, svöruðu því játandi, en þriðjungur sagðist ekki hafa orðið fyrir slíkri tilraun. Þátttakendur voru einnig spurðir hvort þeir hefðu, á síðustu þremur árum, verið fórnarlamb svika á neti eða í síma og tapað fjármunum. Langstærstur hluti þátttakenda, eða 91,5 prósent, svaraði neitandi en 8,5 prósent sögðust hafa tapað fjármunum í hendur svikahrappa á tímabilinu. Þótt hlutfallið sé tiltölulega lágt er ljóst að fjöldi fólks verður enn fyrir barðinu á svikahröppum. Netsvikarar svífast einskis til að hafa af fólki fjármuni og eru sífellt að þróa tæknilegri og trúverðugri svikaaðferðir. Því er mikilvægt að fólk sé alltaf á varðbergi, líka í sumarfríinu. Nokkrar sekúndur sem fara í að sannreyna skilaboð geta komið í veg fyrir verulegt fjárhagslegt tjón. Heilbrigð tortryggni getur skipt sköpum. „Vinsamlegast greiðið innan sólarhrings“ Nú eru sumarfrí í algleymingi og fjöldi fólks á ferðinni. Á sama tíma tvíeflast svikahrappar sem nýta sér að fólk er afslappaðra, vinnustaðir fámennari og árvekni fólks minni. Sama mynstur sést gjarnan í kringum önnur stór frí, svo sem páska og jól. Því er mikilvægt að vera á varðbergi, jafnvel þegar markmiðið er einfaldlega að slaka á. Svikahrappar reyna gjarnan að skapa tímapressu. Það gera þeir meðal annars með gerviskilaboðum. Þau geta birst sem tölvupóstur frá yfirmanni með beiðni um tafarlausa millifærslu, skilaboð frá hóteli eða flugfélagi um að staðfesta bókun eða tilkynning um pakka sem bíður greiðslu. Þessi skilaboð eiga það sameiginlegt að fá fólk til að bregðast hratt við án þess að kanna málið betur. Svikararnir treysta á að við séum á ferð og flugi og gefum okkur því síður tíma til að sannreyna upplýsingar. Það getur margborgað sig að staldra við Við getum dregið verulega úr hættunni með einföldum varúðarráðstöfunum. Gefðu þér augnablik til að fara vandlega yfir skilaboðin, athuga sendanda og gaumgæfa vefslóðir áður en þú smellir. Það getur sparað bæði fjármuni og óþarfa fyrirhöfn. Þar að auki kemur það í veg fyrir svekkelsið sem fylgir því að verða fyrir svikum. Grunnreglan er einföld: Ef þú færð skilaboð þar sem þér er sagt að borga strax, kannast ekki við að hafa átt viðskiptin sem vísað er til, eða eitthvað annað kemur undarlega fyrir sjónir, þá er betra að staldra við og skoða málið betur. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Öryggis- og varnarmál Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Mest lesið Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar