Handbolti

Önnum kafinn Arnór óskar Bene­dikt góðs bata

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Arnór Atlason þarf að bíða eitthvað lengur eftir því að sjá Benedikt Gunnar á æfingu.
Arnór Atlason þarf að bíða eitthvað lengur eftir því að sjá Benedikt Gunnar á æfingu. TTH HOLSTEBRO

Arnór Atlason hefur lítinn tíma til að undirbúa danska handboltaliðið TTH Holstebro fyrir komandi átök í deild, bikar og Evrópu. Nú þegar hafa tveir leikmenn lent í meiðslum en Arnór vonast til að sjá þá sem fyrst aftur.

Leikjaálagið verður mikið í vetur hjá TTH Holstebro, sem tekur þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn síðan árið 2014. Liðið dróst í morgun í riðil með Benfica frá Portúgal, Karviná frá Tékklandi og Torrelavega frá Spáni í Evrópudeildinni.

„Það verða margir leikir og ekki svo margar æfingar, þannig að það er mikilvægt að við nýtum tímann vel núna á, þegar við höfum meiri tíma til að vinna í hlutunum,“ sagði Arnór Atlason við Avisen í morgun eftir fyrstu æfingu liðsins á undirbúningstímabilinu.

Benedikt Gunnar Óskarsson, nýr leikmaður liðsins, lenti í alvarlegum meiðslum meðan hann var í sumarfríi hér á Íslandi. Benedikt fékk golfkúlu í höfuðið og missti hreyfigetu í hægri höndinni, eins og kom fram í viðtali hans við Vísi í gær.

„Í augnablikinu er einbeiting okkar bara á að Benedikt nái fullum bata. Hann er í góðum höndum á Íslandi og er hægt og rólega að taka líkamlegum framförum. Tilfinningin í hendinni er að verða betri og betri. Endurhæfing er í fullum gangi og hann fær meðferð þrisvar í viku. Við fylgjumst náið með framvindunni og vonum það besta fyrir Benedikt,“ sagði Arnór.

Arnór Atlason er einnig aðstoðarþjálfari Snorra Steins Guðjónssonar hjá íslenska landsliðinu. vísir / vilhelm

Auk Benedikts er bakvörðurinn Thomas Damgaard að glíma við meiðsli.

„Í sókninni verðum við líka án Thomas Damgaard í byrjun tímabilsins og þess vegna verðum við, meðal annars, að koma Thomas Houtepen betur inn í hlutina,“ sagði Arnór en var sáttur með fyrstu æfingu liðsins.

„Strákarnir komu í góðu skapi og í góðu standi, þannig að ég fer ekki með slæma tilfinningu í háttinn eftir fyrstu æfinguna. Það er alltaf gaman að koma aftur í höllina, sjá nýju strákana á gólfinu og hitta hóp sem manni þykir vænt um að vera með eftir að hafa verið í sundur í mánuð,“ sagði Arnór.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×