Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. júlí 2026 10:32 Háskólinn á Grænlandi á í samstarfi við háskóla vestanhafs, meðal annars við heimskautaháskóla í Alaska. Háskólinn á Grænlandi Háskólinn á Grænlandi tekur ekki þátt í samstarfi með bandarískum háskólum eða fræðistofnunum umfram það sem þegar hefur verið samið um. Líkt og hjá Náttúrufræðistofnun Grænlands er það einnig af öryggisástæðum.
Þetta segir Mari Kleist rektor skólans í viðtali við grænlenska ríkisútvarpið. Hún segir stefnu skólans um margt sambærilega þeirri sem forstöðukona Náttúrufræðistofnunarinnar lýsti fyrir skömmu. „Stefna okkar er í grófum dráttum sú sama. Frá því í fyrra höfum við gætt þess vandlega að hefja ekki nýtt samstarf.“ Áfram sé þó haldið með þau verkefni sem þegar séu í gangi. Að frumkvæði skólans Kleist tekur fram að margir nemendur skólans þurfi lögum samkvæmt að dvelja erlendis um tíma sem hluta af námi sínu. Það er liður í samstarfi við erlenda háskóla á öllum námsstigum. Skólinn beri ábyrgð á að tryggja nemendum aðgang að háskólum erlendis en um leið að nemendur lendi ekki í erfiðum og óheppilegum aðstæðum. Breytingin á afstöðu skólans gagnvart Bandaríkjunum hófst á síðasta ári, að sögn rektors, og var hún tekin að frumkvæði skólans sjálfs en ekki að skipun stjórnvalda eða leyniþjónustu. „Við höfum sjálf tekið ákvörðunina og erum í reglulegu sambandi við yfirvöld og leyniþjónusturnar,“ segir hún. Öryggisstig hærra en í kalda stríðinu Áður hefur komið fram að öryggisstig háskóla sé nú, að mati Konunglega danska vísindafélagsins, hærra en það var í kalda stríðinu. Áður beindust áhyggjurnar einkum að Rússlandi, Kína og Íran. Nú beinist hún ekki síður að Bandaríkjunum. Mari Kleist er rektor Háskólans á Grænlandi.Háskólinn á Grænlandi Kleist segir gott samstarf ríkja milli skólans og bæði grænlenskra stjórnvalda og dönsku leyniþjónustunnar PET þegar kemur að því að skima samstarfsaðila. Það sé PET sem annist sjálft bakgrunnsskoðun, og skólinn spyrji ávallt spurninga um erindi alls samstarfs. Ekki sé þó alltaf talin ástæða til skimunar, til dæmis þegar fyrir liggur góð reynsla af tilteknum löndum eða stofnunum, eða þegar aðilar hafi þegar verið skimaðir áður. Hvert tilvik metið fyrir sig Nýlegar fréttir af áhuga Bandaríkjanna á grænlenskum rannsóknum hafa vakið Kleist til umhugsunar, þótt skólinn hafi ekki merkt aukinn ágang af hálfu Bandaríkjamanna umfram það sem venjulegt telst. Rektor leggur þó áherslu á að hvert tilvik sé metið fyrir sig. Sem dæmi nefnir hún að ef kollegar í Alaska vildu hefja rannsóknarverkefni um menningu inúíta myndi skólinn að öllum líkindum skoða málið vandlega, enda beri hann almennt mikið traust til annarra vestrænna heimskautaháskóla. „En við höfum þá grundvallarafstöðu að setja ekkert af stað fyrr en við upplifum að ástandið sé að verða meira eða minna eðlilegt,“ segir hún.
Grænland Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Sjá meira