Æfði í Las Vegas með þeirri sem er spáð sigri á heimsleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 08:30 Bergrós Björnsdóttir er hér í miðjunni á milli Alex Gazan og þjálfara hennar Justin Cotler. @bergrosbjornsdottir Bergrós Björnsdóttir er á leiðinni á sína fyrstu CrossFit-heimsleika fullorðinna en það er óhætt að segja að spámenn hafi ekki trú á eina íslenska keppandanum í karla- og kvennaflokki á heimsleikunum.
Heimsleikarnir hefjast í Kaliforníu í Bandaríkjunum seinna í þessari viku og CrossFit-vefurinn The Barbell Spin spáir um röð kvennanna sem keppa í ár. Sérfræðingarnir þeirra setja okkar konu í þrítugasta og síðasta sæti listans. Bergrós var vissulega sú síðasta til að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana og er nýliði á hæsta stiginu. Það er því auðvelt að setja hana í síðasta sæti en um leið hefur þessi 19 ára Selfyssingur allt að vinna í keppninni í ár. View this post on Instagram A post shared by The Barbell Spin (@thebarbellspin) Bergrós er enn táningur og hún átti líka glæsilegan feril sem unglingur. Hún keppti þrisvar sinnum á leikunum í sínum aldursflokki og endaði sem þriðja hraustasta ungmenni heims árið 2023. Þetta ár hefur án efa verið hennar stóra ár. Frábær frammistaða á WFP Tour Stop 1 í London og svo aftur á MAD Fitness Festival gaf sterka vísbendingu um hversu öflug hún væri orðin og sjöunda sæti í undanúrslitum á netinu innsiglaði svo farseðilinn á leikana. Ný íslensk dóttir var því á leið á heimsleikana eftir nokkurra ára fjarveru. View this post on Instagram A post shared by Bergrós Björnsdóttir (@bergrosbjornsdottir) Bergrós undirbjó sig með því að fljúga snemma út til Bandaríkjanna og hefur verið að æfa í Las Vegas undanfarnar vikur. Þar fékk hún tækifæri til að æfa með einni af þeim bestu. „Hún heitir Alex Gazan og ég er að fara að æfa með henni núna í Las Vegas þannig að þetta verður ævintýri. Ég verð hérna hjá henni í æfingabúðum í tvær vikur. Við förum síðan yfir til San Jose þar sem heimsleikarnir eru. Þetta er stórt tækifæri fyrir mig til að geta farið út og æft með henni,“ sagði Bergrós í viðtali við Íþróttadeild Sýnar áður en hún fór út. Æfingafélagi hennar er Alex Gazan, reyndur keppandi sem tók þátt í þremur heimsleikum frá 2022 til 2024 en missti af leikunum í fyrra á grátlegan hátt. Svo skemmtilega vill til að The Barbell Spin spáir Gazan sigri á heimsleikunum í ár. Hún er í fyrsta sæti í spánni á undan Lucy Campbell, Paige Rodgers og Emmu Lawson. Klippa: Bergrós um æfingafélagann sinn í Las Vegas Gazan stefndi hraðbyri að sínu besta keppnistímabili frá upphafi á síðasta ári þegar bílslys nokkrum dögum eftir að hún tryggði sér sæti á heimsleikunum 2025 batt enda á það. Hún sneri aftur til keppni á Rogue Invitational í október þar sem hún lenti í öðru sæti og vakti verðskuldaða athygli fyrir frábær tilþrif þar. Alex tryggði sér keppnisrétt með því að sigra Nor Cal Classic-undanúrslitamótið og frammistaða hennar þar sem og á öllu tímabilinu þýðir að margir hafa trú á henni eins og sést á þessari fyrrnefndu spá. Það verður líka fróðlegt að sjá hvort Bergrós nái að læra af þessari frábæru CrossFit-konu en það er örugglega ekki algengt að sú sem er spáð neðsta sætinu æfi með þeirri sem er spáð sigri.
Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sjá meira