Íslenska víkingaklappið lifir: FH-strákarnir unnu Gothia Cup Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 09:30 FH-strákarnir kunnu sko að fagna sigrinum á Gothia Cup um helgina. @gothiacup_official 4. flokkur FH í fótbolta átti frábæra keppnisferð til Svíþjóðar sem lauk um helgina en FH-strákarnir unnu hið fræga unglingamót Gothia Cup.
FH vann spænska liðið Imperial Future í úrslitaleik stráka fjórtán ára og yngri. Víkingur Hrafn Þórhallsson skoraði eina markið á 47. mínútu en hann var langmarkahæstur hjá FH-liðinu með átján mörk í aðeins tíu leikjum. FH-ingar voru taplausir á mótinu, unnu níu leiki, gerðu eitt jafntefli og skoruðu 53 mörk gegn aðeins tveimur. Þeir unnu þýska liðið SG Borken e.V. 4-0 í undanúrslitaleiknum þar sem Víkingur Hrafn var með þrennu og Magnús Páll Eyjólfsson skoraði eitt mark. View this post on Instagram A post shared by Gothia Cup (@gothiacup_official) Fyrirliðinn Jón Mikael Gestsson var næstmarkahæstur hjá FH á mótinu með níu mörk af miðjunni og Fannar Helgi Kristinsson skoraði sex mörk. Lárus Flóki Björnsson skoraði fimm mörk, Guðmundur Árni Guðrúnarson var með fjögur mörk og Breki Fjalar Valdimarsson skoraði þrjú. Eftir leikinn sýndu FH-strákarnir að íslenska víkingaklappið lifir enn góðu lífi þrátt fyrir að norski víkingaróðurinn hafi stolið senunni á þessu HM-sumri. Jón Mikael mætti með trommu út á gras og stjórnaði víkingaklappinu með liðsfélögum sínum og stuðningsfólkinu í stúkunni. Arnar Sigþórsson er þjálfari liðsins og er greinilega að gera frábæra hluti með framtíðarleikmenn FH-inga. View this post on Instagram A post shared by Gothia Cup (@gothiacup_official)
Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sjá meira