Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Áróra L Davíðsdóttir skrifar 20. júlí 2026 18:48 Alls hafa 28 látist í árásum Rússa á svæðinu frá mánaðamótum að sögn héraðsstjóra Ódessu. Getty Tíu eru látnir eftir árás Rússa á flutningaskip við strendur úkraínsku hafnarborgarinnar Ódessu en árásir á svæðið hafa aukist síðustu vikur.
Skipið Golden Leo, sem sigldi undir fana Gíneu-Bissaú, varð fyrir stýriflaugaárásum Rússa í gærnótt og kviknaði í því, að sögn úkraínska hersins. Níu áhafnarmeðlimir auk hafnsögumanns skipsins létust í árásunum. Utanríkisráðuneyti Indlands sagði fjóra ríkisborgara Indlands vera meðal þeirra látnu. Alls hafi tuttugu og átta látist í árásum Rússa í héraðinu frá mánaðamótum að sögn Oleh Kiper, héraðsstjóri Ódessu. Auknar árásir Rússa á flutningaskip séu líklega ætlaðar til að fæla erlend fyrirtæki frá siglingarleiðinni á Svartahafi og viðskiptum við Úkraínu, segir í umfjöllun BBC. Útflutningur sé mikilvæg tekjulind fyrir úkraínsku þjóðina en tveir þriðju allra útflutningsvara Úkraínu fari með útflutningi á sjó. Serhiy Koretskyi, nýr forsætisráðherra Úkraínu, sagði í gær að ríkisstjórn hans og herstjórnin væru að „undirbúa ákvarðanir sem munu auka öryggi siglinga og hjálpa til við að vernda borgaraleg skip og áhafnir þeirra“ fyrir árásum Rússa. Úkraína hefur einnig lagt aukinn þunga í árásir sínar á rússnesk mannvirki og skip á Svartahafi og Azovshafi.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Indland Tengdar fréttir Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Minnst tíu eru særð eftir loftárásir Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt að sögn úkraínskra yfirvalda. Minnst sextíu hafa látist í árásum Rússa á Kænugarð og nágrenni það sem af er mánaðar. 11. júlí 2026 09:47 Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Komið hefur til mótmæla í Úkraínu vegna ákvörðunar Vólódimírs Selenskís forseta um að láta varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov taka pokann sinn. Forsetinn segir valið hafa staðið á milli Fedorov og yfirherforningjans Oleksandr Syrskyi. 17. júlí 2026 08:04 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira
Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Minnst tíu eru særð eftir loftárásir Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt að sögn úkraínskra yfirvalda. Minnst sextíu hafa látist í árásum Rússa á Kænugarð og nágrenni það sem af er mánaðar. 11. júlí 2026 09:47
Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Komið hefur til mótmæla í Úkraínu vegna ákvörðunar Vólódimírs Selenskís forseta um að láta varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov taka pokann sinn. Forsetinn segir valið hafa staðið á milli Fedorov og yfirherforningjans Oleksandr Syrskyi. 17. júlí 2026 08:04