Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2026 12:01 Pep Guardiola er einn sigursælasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og vann þennan bikar sex sinnum sem knattspyrnustjóri Manchester City. Getty/Visionhaus Pep Guardiola er hættur sem knattspyrnustjóri Manchester City eftir sigursælan áratug en nú ætlar félagið að taka inn pening á sölu hluta tengdum stjóratíð hans.
Bolti sem var búinn til eftir að Erling Braut Haaland náði hundrað mörkum í ensku úrvalsdeildinni á mettíma er einn af þeim hlutum sem voru á skrifstofu Guardiola hjá Manchester City. Guardiola hætti sem stjóri City eftir síðasta tímabil en undir hans stjórn varð félagið sex Englandsmeistari og vann alls tuttugu titla. Enzo Maresca tók við liðinu á dögunum og hann hefur greinilega tekið til á gömlu skrifstofu Guardiola. La oficina de Pep Guardiola será protagonista de una subasta online. El Manchester City anunció que varios objetos del entrenador, como su silla, lámpara, tazas de café y adornos, estarán disponibles para los aficionados.#COS pic.twitter.com/B9ES7DvvKC— COS (@COSPanama) July 20, 2026 Til að marka lok tímabils Guardiola í Manchester hefur félagið nú ákveðið að bjóða upp hlutina sem voru á skrifstofu hans. Hægt er að bjóða í bæði skrifstofustólinn, myndir, flautu Guardiola og ýmsar flíkur sem Guardiola notaði á tíma sínum þar. Á skrifborðinu er einnig bolti í glerkassa. Þrír slíkir boltar voru framleiddir eftir að Haaland varð sá fljótasti í sögunni til að skora 100 mörk í ensku úrvalsdeildinni í desember 2025. Norðmaðurinn náði afrekinu í 111 leikjum. Boltinn er einnig áritaður. Several items from @PepTeam's office are up for auction 🤝Explore all the items on offer below ⤵️🔗 https://t.co/ekI9Xe0A2W pic.twitter.com/VEjHno5l9I— Manchester City (@ManCity) July 20, 2026 Hingað til er boltinn sá hlutur sem er með langhæsta verðið á uppboðssíðunni. Á þriðjudagsmorgun hafði verið lagt fram boð upp á tæp 5000 bresk pund, sem jafngildir tæpum 850 þúsund íslenskum krónum.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn „Eyðileggur íþróttina“ Sport Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Fleiri fréttir Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Sjá meira