Viðskipti innlent

At­vinnu­leysi fimm prósent í júní

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Í tilkynningu Hagstofunnar í júní sagði að algengt væri að ungmenni sem alla jafna eru í skóla á veturna leiti á vinnumarkað á sumrin.
Í tilkynningu Hagstofunnar í júní sagði að algengt væri að ungmenni sem alla jafna eru í skóla á veturna leiti á vinnumarkað á sumrin. GETTY

Atvinnuleysi var fimm prósent í júní samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Þúsundir voru án atvinnu.

Á aldrinum 16 til 74 ára voru 11.500 atvinnulausir í júní en hlutfall starfandi var 74,4 prósent og atvinnuþátttaka 78,4 prósent.

„Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,6 prósentustig á milli maí og júní 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 1,9 prósentustig og atvinnuþátttaka dróst saman um 2,4 prósentustig,“ segir í tilkynningu frá Hagstofunni.

Mæling vinnumarkaðsrannsóknarinnar, sem er ekki leiðrétt eftir árstíðum, sýndi fram á 3,9 prósenta atvinnuleysi í júní og fjölda atvinnulausra 9200. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 1,7 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 5,4 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 4,1 prósentustig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×